Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1206/2014

Nr. 1206/2014 17. desember 2014
GJALDSKRÁ
Hitaveitu Húnaþings vestra.

1. gr.

Hitaveita Húnaþings vestra selur heitt vatn úr hitaveitukerfum þeim, sem gerð hafa verið eða kunna að verða gerð í lögsagnarumdæmi sveitarfélagsins Húnaþings vestra og hún hefur umráðarétt yfir eftir þeim reglum, sem settar eru í gjaldskrá þessari, sbr. reglugerð nr. 1192/2012 fyrir Hitaveitu Húnaþings vestra.

2. gr.

Hitaveita Húnaþings vestra lætur hverju húsi, sem er í sambandi við vatnsæðar hennar í té vatnsmagn, er ætla má að nægi til hitunar á húsinu. Hitaveitan lætur setja rennslis­mæli eða stillanlegan hemil fyrir hámarksrennsli til hvers upphitunarkerfis og miðast gjald hitaveitunnar fyrir selt heitt vatn við rúmmetra samkvæmt rennslismælinum eða það hámark, sem hemillinn er stilltur á. Hitaveitan ræður gerð rennslismæla og hemla og sér um viðhald og endurnýjun þeirra.

3. gr.

Einungis starfsmenn hitaveitunnar mega breyta stillingu innsiglaðra tengihluta. Hitaveitan breytir stillingu hemils eftir óskum húseiganda fyrsta árið, sem hús hans er tengt við hitaveitukerfið, en síðan verður hemilsstillingu að jafnaði breytt einu sinni á ári og skal skrifleg beiðni um breytingu koma fram við hitaveituna fyrir 1. september ár hvert. Hámarksstilling hemils gildir allt árið þótt vatnsnotkun verði minni hluta úr ári. Minnsta sala gegnum hemil skal vera 1,5 mínútulítrar. Selt vatnsmagn standi ávallt á heilum eða hálfum mínútulítra.

Ef kaupandi óskar að hemill eða mælir sé prófaður skal hann senda skriflega beiðni þar um til hitaveitunnar. Komi í ljós við þá athugun að frávik sé 5% eða minna, er heimilt að gera kaupanda að greiða álestrargjald. Sé frávik meira skal hitaveitan greiða kostnað við prófunina og leiðrétta reikning kaupanda í samræmi við niðurstöður hennar, þó ekki fyrir lengra tímabil en tvo mánuði nema kaupandi eða Hitaveita Húnaþings vestra, eftir því sem við á, geti sannað að um lengra tímabil hafi verið að ræða, þó lengst fjögur ár.

4. gr.

Hitaveita Húnaþings vestra rekur 4 aðskilin hitaveitusvæði og dreifikerfi með vatni sem hefur mismunandi hita eftir svæðum. Þessi svæði eru á Hvammstanga við Miðfjörð, á Laugarbakka í Miðfirði á Reykjatanga við Hrútafjörð og á Borðeyri. Gjald fyrir eininguna af heitu vatni (m³ eða l/mín) verður því mishátt eftir svæðum.

5. gr.

Gjöld fyrir afnot af hitaveituvatninu eru sem hér segir:

a)

Hvammstangaveita skv. mæli

kr.

119

 

pr. m³

b)

Laugarbakkaveita skv. mæli

kr.

94

 

pr. m³

c)

Reykjatangaveita skv. mæli

kr.

94

 

pr. m³

d)

Borðeyrarveita

kr.

94

 

pr. m³

e)

Hvammstangaveita skv. hemli

kr.

2.528

 

pr. mín.lítra

f)

Laugarbakkaveita skv. hemli

kr.

1.921

 

pr. mín.lítra

g)

Reykjatangaveita skv. hemli

kr.

1.921

 

pr. mín.lítra

h)

Fastagjald hemils eða mælis, allar veitur

    
 

A 15 mm

 

13.969

 

kr./ár

 

B 20-25 mm

 

27.219

 

kr./ár

 

C 32-50 mm

 

58.271

 

kr./ár

 

D 65 mm og stærri

 

79.547

 

kr./ár

i)

Vatnsgjald skv. mæli fyrir gróðurhús

 

20

 

kr. pr. m³

j)

Vatnsgjald skv. mæli fyrir sundlaugar skal vera 25% af taxta viðkomandi veitna

    

k)

Lokunargjald

kr.

4.200

  

6. gr.

Heimæðargjald Hitaveitu Húnaþings vestra skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð í þéttbýli:

 

Þvermál pípu stál

Þvermál pípu plast

  Heimæðargjald

Viðmiðunarstærðir húsnæðis

 

20 mm

25 mm

kr.

280.159  

allt að 1.200 m³

 

25 mm

32 mm

kr.

411.726  

1.200-2.600 m³

 

32 mm

40 mm

kr.

624.054  

2.600-4.000 m³

 

40 mm

50 mm

kr.

1.153.550  

4.000-10.000 m³

Ef um sverari heimæðar er að ræða skal semja um það sérstaklega.

Lengdargjald.

Lengdargjald í þéttbýli, skal greiða fyrir hvern metra umfram 25 metra innan lóðarmarka 4.376 kr./m.

Stofngjald fyrir hvern aðrennslismæli umfram einn á sama inntak er kr. 38.748.

Heimæðargjald Hitaveitu Húnaþings vestra í dreifbýli, frávik og breytingar. Gjöld fyrir hitaveitulagnir í dreifbýli og aðrar stærðir heimæða en um getur að ofan svo og fyrir breyt­ingar greiðist samkvæmt skriflegu tilboði hverju sinni.

Sé um óskipulagt svæði að ræða, eða aðstæður óvenjulegar, er heimilt að krefjast sér­staks aukagjalds af húsráðanda eða gera honum að greiða fyrir heimtaugina sam­kvæmt kostnaði, en gera skal honum aðvart um það fyrirfram.

7. gr.

Heimæðargjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar, í október 2012 577,1 stig. Hitaveitunni er heimilt að breyta heimæðagjöldum þessum í sam­ræmi við breytingu á nefndri vísitölu.

8. gr.

Öll gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka fjárnámi á kostnað gjaldanda skv. 79. gr. laga nr. 58/1967, með síðari breytingum.

9. gr.

Hitaveita Húnaþings vestra hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð notanda, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með fimm daga fyrirvara. Allan kostnað af lokun og opnun greiðir sá sem vanskilum veldur hverju sinni.

Eftirlitsmanni Hitaveitu Húnaþings vestra skal, hvenær sem er, frjáls aðgangur að öllum hitakerfum, sem tengd eru við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrir­mælum hans um viðgerð á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn mis­notkun á heita vatninu.

Við gjaldskrána bætist virðisaukaskattur eins og hann er samkvæmt lögum á hverjum tíma.

Gjaldskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt orkulögum, nr. 58/1967, með síðari breyt­ingum, til að öðlast gildi 1. janúar 2015. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1223/2012.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. desember 2014.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2014