Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 28/2021

Nr. 28/2021 7. janúar 2021

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Moldóvu, nr. 291/2015, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

  1.3 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/1789 frá 24. október 2019 um breytingu á ákvörðun 2010/573/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn stjórninni á Transnistríusvæðinu í Lýðveldinu Moldóvu, sbr. fylgiskjal 1.3.
  1.4 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/1586 frá 29. október 2020 um breytingu á ákvörðun 2010/573/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn stjórninni á Transnistríusvæðinu í Lýðveldinu Moldóvu, sbr. fylgiskjal 1.4.

2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þving­unaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og upp­færslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um fram­kvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 7. janúar 2021.

 

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 21. janúar 2021