Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1515/2021

Nr. 1515/2021 20. desember 2021

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um lágmarksupplýsingar tiltekins skjals sem birta skal vegna undanþágu frá lýsingu í tengslum við yfirtöku með skiptiútboði, samruna eða uppskiptingu.

1. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/528 frá 16. desember 2020 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1129 að því er varðar lágmarksupplýsingar tiltekins skjals sem birta skal vegna undanþágu frá lýsingu í tengslum við yfirtöku með skiptiútboði, samruna eða uppskiptingu. Reglugerðin var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 216/2021 frá 9. júlí 2021, með þeim aðlögunum sem leiðir af bókun 1 um altæka aðlögum við samn­inginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið nr. 2/1993. Reglugerðin er birt á bls. 334-348 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 80 frá 16. desember 2021.

 

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 1. mgr. 19. gr. laga nr. 14/2020, um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 20. desember 2021.

F. h. fjármála- og efnahagsráðherra,

Guðrún Þorleifsdóttir.

Benedikt Hallgrímsson.


B deild - Útgáfud.: 23. desember 2021