Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt deiliskipulagsbreytingar sem hér segir:
Leirvogstunguhverfi – Kvíslartunga 5. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að lóðinni Kvíslartungu 5 verði breytt úr einbýli á tveimur hæðum í parhús á tveimur hæðum, við bætist íbúð 5A. Hvor íbúðareining skal hafa bílageymslu og bílastæði innan lóðar. Botnlangi lengist. Aðrir skilmálar eru óbreyttir.
Reykjabyggð – Reykjahvoll 4. Deiliskipulagsbreytingin fyrir Reykjahvol 4, áður Ásar 6, felur í sér aukið byggingarmagn á 1.490 m² lóð. Heimild fer úr 220 m² í 380 m². Hámarkshæð hækkar úr 6 m í 8 m. Húsið er ein hæð og ris. Nýtingarhlutfall verður um 0,25.
Reykjabyggð – Reykjahvoll 31. Deiliskipulagsbreytingin fyrir Reykjahvol 31, F-húsagata á skipulagi, felur í sér aukið byggingarmagn á 930 m² lóð. Heimild fer úr 220 m² í 280 m². Húsið er ein hæð og hæð inn í landhalla. Nýtingarhlutfall verður um 0,3.
Lyngbrekka við Krókatjörn – L125153. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér lagfæringu lóðamarka til vesturs og að aðlaga þau L125152. Breytingin er tilkomin vegna uppfærðra gagna. Aðrir skilmálar eru óbreyttir.
Tungumelar – Athafnasvæði. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér endurskoðun og einföldun á stígakerfi athafnasvæðis að Leirvogstungumelum. Gangstéttum við þrjár götur er þannig breytt úr því að vera beggja vegna götu í að vera aðeins öðrum megin götunnar. Einnig er göngustígur milli Bugðufljóts 7 og 9 í átt að Leirvogsá felldur út.
Ofangreindar deiliskipulagsbreytingar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 20. ágúst 2020,
Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi.
|