Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 340/2021

Nr. 340/2021 18. mars 2021

GJALDSKRÁ
Seðlabanka Íslands.

1. Gjaldeyriskaup/sala
  1.1. Gjaldeyriskaup Kaupgengi  1
  1.2. Gjaldeyrissala Sölugengi    
         
2. Erlendar greiðslur2    
  2.1. Skeytakostnaður   2.000 kr. 3
  2.2. Færsla á IG-reikningi 2.000 kr.  
  2.3. Stöðvun/endurköllun á greiðslu    
    2.3.1. Áður en greiðsla hefur farið fram 3.500 kr.  
    2.3.2. Eftir að greiðsla hefur farið fram 3.500 kr.  
  2.4. Fyrirspurnir/staðfestingar o.þ.h.    
    2.4.1. Innan við 1 mánuð frá gjalddaga 1.000 kr.  
    2.4.2. 1 til 3 mánuðum frá gjalddaga 3.000 kr.  
    2.4.3. 3 til 6 mánuðum frá gjalddaga 4.000 kr.  
    2.4.4. Meira en 6 mánuðum frá gjalddaga 6.000 kr.  
       
3. Fjárhirslur    
  3.1. Greining skemmdra seðla pr. seðil 15 kr.  
         
4. Safnadeild
  4.1. Myntrit 3 Opinber gjaldmiðill á Íslandi 1.500 kr.  
  4.2. Iceland the Republic 1.000 kr.  
  4.3. Myntsett 1.250 kr.  
         
5. Netbanki
  Mánaðargjald pr. notanda 6.000 kr.  
       
6. Innheimtukröfur
  Skráningargjald pr. kröfu 300 kr.  
       
7. Almennt    
  7.1. Millifærslubeiðnir 500 kr.  
  7.2. Fyrirspurnir um stöðu og hreyfingar 500 kr.  
         
8. Gjöld vegna millibankakerfis Seðlabankans4
  8.1. Þátttakendur með efnahagsreikning yfir 10 ma.kr.
    8.1.1. Stofn- og tengigjald nýrra aðila 12.000.000 kr.  
    8.1.2. Mánaðargjald miðað við færslufjölda    
      8.1.2.1. < 100.000 411.010 kr.  
      8.1.2.2. 100.000 – 10.000.000 934.115 kr.  
      8.1.2.3. > 10.000.000 10.462.083 kr.  
  8.2. Þátttakendur með efnahagsreikning undir 10 ma. kr.    
    8.2.1. Stofn- og tengigjald nýrra aðila 6.000.000 kr.  
    8.2.2. Mánaðargjald 205.505 kr.  
  8.3. Verðbréfamiðstöðvar    
    8.3.1. Fastir uppgjörshringir, mánaðargjald 597.833 kr.  
  8.4. Annar sértækur kostnaður    
    8.4.1. Greiða skal sérstaklega fyrir annan sértækan kostnað sem leiðir af óskum eins þátttakanda um breytingar á millibankakerfinu eða vinnu við prófanir og útfærslur á eigin kerfum þátttakanda sem ekki teljast til hefðbundins reksturs millibankakerfis. Skal þátttakandi greiða tímagjald sem nemur 10.000 kr. fyrir vinnu starfsmanna bankans. Þá skal þátttakandi greiða útlagðan kostnað ef til kemur. Gjaldið skal greitt samkvæmt reikningi sem Seðlabankinn gefur út við lok verksins ásamt tímaskýrslu um fjölda vinnustunda sem bankinn hefur varið í afgreiðsluna og útlistun á útlögðum kostnaði.    

____________

1 Kaup- og sölugengi miðast við skráð miðgengi Seðlabanka Íslands með 0,35% frádragi eða 0,35% álagi á þeim degi er viðskipti fara fram.
2 Allur erlendur bankakostnaður greiðist sérstaklega.
3 Erlendur bankakostnaður sem greiddur er af sendanda (OUR greiðslur) greiðist sérstaklega.
4 Þessi gjaldskrá vegna millibankakerfis kemur í stað gjaldskráa stórgreiðslukerfis Seðlabanka Íslands og jöfnunar­kerfis greiðsluveitu. Gjöld vegna millibankakerfis eru innheimt mánaðarlega fyrir hvern næstliðinn mánuð. Seðla­banki Íslands greiðir 7,5% af samanlögðum rekstrarkostnaði millibankakerfis.

 

Gjaldskrá þessi er sett á grundvelli 43. gr. laga nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands, og tekur gildi 1. apríl 2021. Samhliða fellur úr gildi gjaldskrá Seðlabanka Íslands nr. 1377/2020. Um gjald­töku vegna sértækra aðgerða við fjármálaeftirlit á grundvelli sérlaga sem gilda um starfsemi Seðla­bankans vísast til sérstakrar gjaldskrár. Gjaldskrá þessi var staðfest af bankaráði Seðlabanka Íslands hinn 10. mars 2021.

 

Seðlabanka Íslands, 18. mars 2021.

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 29. mars 2021