Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 978/2022

Nr. 978/2022 16. ágúst 2022

AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá fyrir heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Norðurlandssvæðis eystra, nr. 670/2009.

1. gr.

1. og 2. mgr. 2. gr. gjaldskrárinnar orðist svo:

Tímagjald kr. 16.000
Gjald fyrir rannsókn á hverju sýni m.t.t. örvera og eðlisþátta kr. 26.000
Gjald fyrir flutning (dráttargjald) á skráningarskyldum ökutækjum án skráningarmerkja, tækjum, kerrum, vinnuvélum, bátum og lausamun­um skv. samþykkt nr. 463/2002 um umgengni og þrifnað utanhúss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra kr. 25.000
Gjald fyrir geymslu (geymslugjald) á skráningarskyldum ökutækjum án skráningarmerkja, tækjum, kerrum, vinnuvélum, bátum og lausa­mun­um skv. samþykkt nr. 463/2002 um umgengni og þrifnað utan­húss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra kr.   1.000 á dag

 

2. gr.

3. gr. gjaldskrárinnar orðist svo:

Af starfsleyfisskyldri starfsemi, er aðildarsveitarfélögum heimilt að innheimta gjald fyrir starfs­leyfi eins og hér segir:

Endurnýjun starfsleyfis:
  Starfsleyfisgjald eitt og hálft tímagjald
  og auglýsingakostnaður ef við á  
     
Ný starfsemi:
  Starfsleyfisgjald eitt og hálft tímagjald
  og eftirlitsgjald viðkomandi fyrirtækjaflokks  
  ásamt auglýsingagjaldi ef við á  
     
Önnur starfsleyfi sem ekki eru í eftirlitsáætlun:
  Starfsleyfisgjald eitt og hálft tímagjald
  og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings, ferðar,  
  úttektar og frágangs ásamt auglýsingakostnaði ef við á  

 

3. gr.

Gjald skv. viðauka gjaldskrárinnar orðist svo:

  1. flokkur kr.     8.885
  2. flokkur kr.   17.770
  3. flokkur kr.   35.541
  4. flokkur kr.   54.069
  5. flokkur kr.   68.237
  6. flokkur kr. 100.016
  7. flokkur kr. 124.184
  8. flokkur kr. 145.509
  9. flokkur kr. 184.394
10. flokkur kr. 244.603
11. flokkur kr. 276.384
12. flokkur kr. 304.813

 

4. gr.

Auglýsing þessi er samin með heimild í 46. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 með síðari breytingum, 65. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 með síðari breyt­ingum, 25. gr. laga um matvæli nr. 93/1995 með síðari breytingum og 8. gr. laga um tóbaksvarnir nr. 6/2002 með síðari breytingum. Auglýsingin ásamt fjárhagsáætlun 2022 var samþykkt í heilbrigðis­nefnd 6. október 2021 og öðlast gildi við birtingu.

 

Akureyri, 16. ágúst 2022.

 

Alfreð Schiöth,
framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlandssvæðis eystra.


B deild - Útgáfud.: 30. ágúst 2022