Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
593/2019

Nr. 593/2019 24. júní 2019

AUGLÝSING
um samþykkt breytingar á deiliskipulagi í Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem hér segir:

Þverholt 21-23.
Breytingin felur í sér fjölgun íbúða úr 12 í 24, byggingarreitir eru stækkaðir og færðir til innan lóðar. Bílastæði í bílakjallara eru felld niður og í kjallara verða einungis geymslur og stoðrými. Bílastæðum ofanjarðar fjölgar í 24.

Ofangreind breyting hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 24. júní 2019,

Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 25. júní 2019