Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 188/2022

Nr. 188/2022 11. febrúar 2022

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 840/2015.

1. gr.

Á eftir 2. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 2. gr. a., svohljóðandi:

Þrátt fyrir 7. tl. 2. mgr. 4. gr. og 1. mgr. 11. gr. laga nr. 65/2015 skal leyfisveitandi ekki aftur­kalla þegar útgefið starfsleyfi þegar umsækjandi, forsvarsmaður umsækjanda, leyfishafi eða forsvars­maður leyfishafa skulda samanlagt allt að 10.000.000 kr. í skatta og opinber gjöld, enda sé í gildi greiðslu­áætlun milli framangreindra aðila og skattyfirvalda um niðurgreiðslu skuldar. Þá er leyfis­veitanda í slíkum tilvikum jafnframt heimilt að gefa út starfsleyfi. Verði ekki staðið við greiðslu­­áætlun, að mati leyfisveitanda, ber leyfisveitanda að afturkalla leyfið án fyrirvara eða aðvörunar. Við mat á því hvort staðið hafi verið við greiðsluáætlun er leyfisveitanda heimilt að afla upplýs­inga frá skattyfirvöldum.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í lögum um leigu skráningarskyldra ökutækja nr. 65/2015 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 1. janúar 2023.

 

Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, 11. febrúar 2022.

 

Lilja D. Alfreðsdóttir
menningar- og viðskiptaráðherra.

Sigrún Brynja Einarsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 15. febrúar 2022