1. gr.
Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 685 frá 5. júlí 2018 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2018/2019 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi:
Súðavíkurhreppur.
Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta fyrir Súðavík með eftirfarandi viðauka/breytingum:
|
a) |
a-liður 1. gr. breytist þannig: Hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006 eða frístundaveiðileyfi skv. 2. tl. 4. mgr. 6. gr. sömu laga, við lok umsóknarfrests. |
|
b) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að 20% byggðakvóta Súðavíkur skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og eru með frístundaveiðileyfi. 20% byggðakvóta Súðavíkur skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem hafa aflamarksveiðileyfi og uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar. 60% byggðakvóta Súðavíkur skal skipt jafnt milli annarra fiskiskipa sem landað hafa 50% eða meira af sínum afla, fiskveiðiárið 2017/2018 í Súðavík og uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar. |
|
c) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla í Súðavík sem telja á til byggðakvóta, og einnig úthlutuðum byggðakvóta, til vinnslu í Súðavík á tímabilinu frá 1. september 2018 til 31. ágúst 2019. |
2. gr.
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. mars 2019.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jóhann Guðmundsson.
|