Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 929/2020

Nr. 929/2020 25. september 2020

REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 864/2020, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr.

Í stað „27. september 2020 kl. 23.59“ í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 18. október 2020 kl. 23.59.

 

2. gr.

Á eftir fyrsta málslið 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður sem orðast svo: Veitinga­stöðum þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar er skylt að hafa sæti fyrir alla gesti staðar­ins og tryggja að gestir séu að jafnaði í sætum eins og almennt tíðkast á veitingahúsum og kaffi­húsum.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997, öðlast þegar gildi, að frátalinni 2. gr. sem tekur gildi þann 28. september 2020.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 25. september 2020.

 

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 25. september 2020