Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1158/2016

Nr. 1158/2016 22. desember 2016

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um almannaflug flugvéla, nr. 694/2010 og reglugerð um almannaflug þyrlna, nr. 695/2010.

I. KAFLI

Breyting á reglugerð um almannaflug flugvéla, nr. 694/2010.

1. gr.

1. málsliður 9. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi að undanskilinni grein 6.4 í viðauka I við reglugerðina sem tekur gildi 31. mars 2018.

II. KAFLI

Breyting á reglugerð um almannaflug þyrlna, nr. 695/2010.

2. gr.

9. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi að undanskilinni grein 6.4 í viðauka I við reglugerðina sem tekur gildi 31. mars 2018.

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1144/2012 um breytingu á reglugerð um almannaflug flugvéla, nr. 694/2010 og reglugerð um almannaflug þyrlna, nr. 695/2010.

Innanríkisráðuneytinu, 22. desember 2016.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.


B deild - Útgáfud.: 23. desember 2016