Landskjörstjórn gerir kunnugt: að í ljósi fjölda kjósenda á kjörskrá að baki hverju þingsæti skuli með vísan til 5. mgr. 31. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944, áfram vera níu þingsæti í Norðvesturkjördæmi, átta kjördæmissæti og eitt jöfnunarsæti, og tólf þingsæti í Suðvesturkjördæmi, tíu kjördæmissæti og tvö jöfnunarsæti, sbr. enn fremur 8. og 9. gr. laga nr. 24/2000, um kosningar til Alþingis.
Reykjavík, 5. desember 2008.
Gísli Baldur Garðarsson.
|
Hervör Þorvaldsdóttir.
|
Ástráður Haraldsson.
|
Bryndís Hlöðversdóttir.
|
Þórður Bogason.
|
Ásmundur Helgason.
|