Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1490/2021

Nr. 1490/2021 20. desember 2021

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um skil á tilkynningu um skil á ríki-fyrir-ríki skýrslu.

Tilkynningaskyldir aðilar, sbr. 4. og 5. mgr. 91. gr. a. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skulu innan mánaðar frá lokum reikningsárs á árinu 2022 tilkynna ríkisskattstjóra hvaða félag í samstæðunni skili ríki-fyrir-ríki skýrslu um skattskil og um heimilisfestarríki þess félags. Jafnframt skal tilgreina sérstaklega ef hið tilkynningarskylda félag er móðurfélag heildarsamstæðunnar eða staðgöngufélag móðurfélags.

Tilkynningu samkvæmt auglýsingu þessari skal skilað með því að senda eyðublaðið RSK 4.31 á netfangið: [email protected].

Allar fyrirspurnir vegna framangreindra skila má senda á netfangið: milliverdlagning@ skatturinn.is.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 91. gr. a. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

 

Reykjavík, 20. desember 2021.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 22. desember 2021