Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 644/2018

Nr. 644/2018 21. júní 2018

REGLUGERÐ
um birtingu tilkynningar um álagningu bifreiðagjalds.

1. gr.

Tilkynning um álagningu bifreiðagjalds telst birt skráðum eiganda ökutækis þegar hann getur nálgast hana í pósthólfi á vefsvæðinu Ísland.is sem rekið er af Þjóðskrá Íslands. Álagningin er bindandi frá og með þeim degi.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 9. gr. laga nr. 39/1988, um bifreiðagjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 21. júní 2018.

F. h. r.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Benedikt S. Benediktsson.


B deild - Útgáfud.: 22. júní 2018