Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 638/2018

Nr. 638/2018 5. júní 2018

AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs hf., nr. 254/2003.

Samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, hefur ráðuneytið staðfest eftirfarandi breytingar á gjaldskrá Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs hf., nr. 254/2003, er öðlist gildi við birtingu í Stjórnartíðindum:

4. gr. gjaldskrárinnar breytist og orðist svo:

Hver lítri á mínútu kostar kr. 48.198 á ári, án fastagjalds og virðisaukaskatts.

Notendur sem kaupa 4 l/mín, eða minna greiða einnig fastagjald kr. 21.645 á ári auk virðisaukaskatts.

5. gr. gjaldskrárinnar breytist og orðist svo:

Fyrirtæki sem samið hafa um kaup á heitu vatni samkvæmt rennslismæli greiða kr. 156,47 fyrir rúmmetra vatns auk virðis­auka­skatts, en greiða þá að lágmarki samkvæmt samningi um fastan lítrafjölda.

6. gr. gjaldskrárinnar breytist og orðist svo:

Stofngjöld fyrir Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs eru sem hér segir:

  a) fyrir lögbýli kr. 2.357.077  
  b) fyrir íbúðarhús kr. 623.913  
  c) fyrir sumarhús kr. 439.786  
  d) fyrir aðra aðila kr. 156.394   á mínútulítra

Lágmarksinntak er 2,5 l/mín.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. júní 2018.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 21. júní 2018