Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 907/2019

Nr. 907/2019 4. október 2019

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 319/2009 um inntökuskilyrði í grunnnám við Háskóla Íslands.

1. gr.

2. mgr. 5. gr. reglnanna fellur brott.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. reglnanna:

  1. 2. mgr. fellur brott.
  2. Í stað orðsins „inntökupróf“ í 1. málsl. núverandi 3. mgr. kemur: samkeppnispróf.  
  3. Á eftir núverandi 3. mgr. bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:
     Til að hefja nám í hjúkrunarfræði fyrir fólk sem lokið hefur öðru háskólaprófi skal umsækjandi hafa lokið bakkalárprófi með lágmarkseinkunninni 6,5 og hafa lokið sem svarar 8 einingum í aðferðafræði/tölfræði, 6 einingum í félags- eða sálfræðigreinum og 26 ein­ingum í líffræðigreinum samkvæmt nánari ákvörðun deildar.

3. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fenginni tillögu heilbrigðis­vísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 4. október 2019.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 18. október 2019