Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 633/2021

Nr. 633/2021 11. maí 2021

REGLUGERÐ
um starfsstöðvar undanskildar gildissviði viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir skv. 14. gr. a laga nr. 70/2012 um loftslagsmál.

1. gr.

Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að tryggja að starfsstöðvar sem undanskildar hafa verið gildis­sviði viðskipta­kerfis ESB með losunarheimildir skv. 14. gr. a laga um loftslagsmál uppfylli skilyrði þess að vera undanskildar gildissviði viðskipta­kerfis­ins og að ákvarða losunargjald viðkomandi starfs­stöðvar, með öflun heildstæðra, áreiðanlegra og gagnsærra upplýsinga um losun gróðurhúsa­lofttegunda frá starfsstöð.

 

2. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um starfsstöðvar sem undanskildar hafa verið gildissviði viðskipta­kerfis ESB með losunarheimildir skv. 14. gr. a laga um loftslagsmál og mælir fyrir um vöktun og skýrslu­gjöf um losun gróður­húsa­lofttegunda frá viðkomandi starfsstöðvum.

 

3. gr.

Skilgreiningar.

Í reglugerð þessari er merking orða og orðasambanda sem hér segir:

  1. Gróðurhúsalofttegundir: Lofttegundir sem tilgreindar eru í 4. tölul. 3. gr. laga um loftslags­mál.
  2. Koldíoxíðsígildi: Eitt tonn af koldíoxíðsígildi samsvarar einu tonni af koldíoxíði eða því magni gróðurhúsalofttegunda sem hefur sambærilegan hnatthlýnunarmátt.
  3. Losun gróðurhúsalofttegunda: Útstreymi gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftið frá upp­tökum í starfsstöð.
  4. Rekstraraðili: Aðili sem hefur starfsleyfi skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og stjórnar starfsstöð eða ber fjárhagslega ábyrgð á tæknilegri virkni starfsstöðvar þar sem fram fer starfsemi sem heyrir undir I. viðauka laga um loftslagsmál.
  5. Starfsstöð: Staðbundin tæknileg eining þar sem fram fer ein eða fleiri tegundir starfsemi sem getið er í I. viðauka við lög um loftslagsmál og öll önnur starfsemi sem gæti haft áhrif á losun og mengun og tengist með beinum og tæknilegum hætti þeirri starfsemi sem fram fer á staðnum. Starfsstöð er einnig nefnd stöð.
  6. Starfsstöð með litla losun: Starfsstöð þar sem árleg meðaltalslosun á tímabilinu 2008-2010 var minni en 5.000 tonn koldíoxíðsígilda.
  7. Viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir: Kerfi sem starfrækt er á Evrópska efnahags­svæð­inu samkvæmt tilskipun 2003/87/EB, með síðari breytingum, eins og hún hefur verið tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.

 

4. gr.

Umhverfisstofnun.

Umhverfisstofnun tekur ákvarðanir er varða vöktun og skýrslugjöf eftir því sem kveðið er á um í reglugerð þessari. Umhverfisstofnun er jafnframt lögbært stjórnvald vegna viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir.

Ákvarðanir Umhverfisstofnunar skv. reglugerð þessari eru kæranlegar til ráðherra.

 

5. gr.

Umsókn um undanþágu frá viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

Rekstraraðilar sem óska þess að starfsstöð þeirra verði undanskilin gildissviði viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir skv. 14. gr. a laga um loftslagsmál á úthlutunartímabilinu 2026-2030 skulu eigi síðar en 1. ágúst 2024 senda umsókn þess efnis til Umhverfisstofnunar. Í umsókninni skal koma fram hvernig viðkomandi starfsstöð uppfyllir skilyrði 1. mgr. 14. gr. a sömu laga. Umhverfis­stofnun skal afgreiða slíka umsókn eins fljótt og verða má.

 

6. gr.

Vöktun og skýrslugjöf um losun gróðurhúsalofttegunda.

Rekstraraðila ber skylda til að vakta losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi starfsstöðvar sem heyrir undir reglugerð þessa í samræmi við vöktunaráætlun sem Umhverfisstofnun hefur sam­þykkt. Umhverfisstofnun skal fara yfir vöktunaráætlun og taka afstöðu til þess hvort hún skuli sam­þykkt innan fjögurra vikna frá því að hún berst stofnuninni. Umhverfisstofnun skal aðeins sam­þykkja vöktunaráætlun ef stofnunin telur áætlunina sýna fram á að rekstraraðili sé fær um að vakta losun frá starfsstöð sinni og skila árlegri losunarskýrslu í samræmi við 2. mgr. Tilkynna skal Umhverfis­stofnun um hvers konar breytingar á vöktunaráætlun og skulu verulegar breyt­ingar á áætluninni háðar samþykki stofnunar­innar.

Rekstraraðila starfsstöðvar sem heyrir undir reglugerð þessa ber einnig að skila til Umhverfis­stofnunar vottaðri skýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda á undangengnu almanaksári fyrir 31. mars ár hvert, sbr. þó 7. gr. Umhverfisstofnun er heimilt að krefjast þess að losunarskýrslu sé skilað fyrr, en þó ekki fyrr en 28. febrúar á viðkomandi ári. Umhverfisstofnun skal í slíkum tilvikum tilkynna rekstrar­aðilum um kröfu sína í síðasta lagi 30. nóvember árið á undan og tilgreina ástæður þess að heimildin skuli nýtt. Ákvörðun um breyttan skilafrest skal ná til allra rekstraraðila sem senda Umhverfis­stofnun skýrslu á viðkomandi ári.

Að öðru leyti en mælt er fyrir um í 14. gr. a laga um loftslagsmál og reglugerð þessari skal um vöktun og skýrslugjöf vegna losunar starfsstöðva sem heyra undir reglugerð þessa fara samkvæmt því sem kveðið er á um í reglugerð um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og þeim EES-gerðum sem innleiddar eru með henni, sbr. 31. gr. hennar.

 

7. gr.

Endurskoðun losunarskýrslu.

Rekstraraðila starfsstöðvar með litla losun er heimilt að skila losunarskýrslu sem endurskoðuð hefur verið af hlutlausum og óháðum endurskoðanda á sambærilegan hátt og fjárhagsbókhald fyrirtækja, í stað vottaðrar losunarskýrslu.

Endurskoðandi skal hafa yfir að ráða þekkingu á sviði framleiðslu- og umhverfismála viðkom­andi rekstraraðila. Endurskoðun skýrslu skal fela í sér staðfestingu á því að þær tölur sem gefnar eru upp séu réttar og í samræmi við fjárhagsbókhald rekstraraðila sem og þær tölur sem sendar eru aðila sem hefur eftirlit með losun frá starfsleyfisskyldum rekstri. Endurskoðandi skal gera grein fyrir því hvernig endurskoðun skýrsl­unnar fór fram og staðfesta endurskoðunina með áritun sinni.

 

8. gr.

Heimild Umhverfisstofnunar til að áætla losun gróðurhúsalofttegunda.

Ef losunarskýrsla skv. 2. mgr. 6. gr. hefur ekki borist innan tilskilins frests eða ef skýrslan er ekki í samræmi við þær kröfur sem gilda, sbr. 4. mgr. 6. gr., t.d. vegna þess að fullnægjandi vökt­unar­áætlun hefur ekki borist, eða skýrsla hefur ekki verið vottuð eða endurskoðuð, skal Umhverfis­stofnun áætla losun viðkomandi rekstraraðila á undangengnu almanaksári miðað við mestu mögu­legu losun í viðkomandi starfsemi.

Umhverfisstofnun skal tilkynna rekstraraðila um fyrirhugaða áætlun skv. 1. mgr. með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara og gefa honum kost á að bæta úr annmörkum eða koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en ákvörðun um áætlun er tekin. Ákvörðun um áætlun er kæranleg til ráðherra innan tveggja vikna frá því að hún er tekin.

 

9. gr.

Yfirferð og staðfesting Umhverfisstofnunar.

Umhverfisstofnun fer yfir losunarskýrslu skv. 2. mgr. 6. gr., kannar hvort hún samræmist þeim lögum og reglugerðum sem um hana gilda og hvort viðkomandi starfsstöð uppfylli skilyrði þess að vera undanskilin gildissviði viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir skv. 14. gr. a laga um lofts­lags­mál.

Losunarskýrsla sem Umhverfisstofnun metur fullnægjandi skal staðfest af stofnuninni eins fljótt og verða má eftir að skýrslan berst. Hið sama á við í tilvikum þar sem losun hefur verið áætluð í samræmi við 8. gr.

Ef Umhverfisstofnun telur skýrslu rekstraraðila eða áætlun um losun gróðurhúsalofttegunda leiða í ljós að starfsstöð uppfyllir ekki skilyrði þess að vera undanskilin gildissviði viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir skal stofnunin staðfesta skýrsluna með þeirri athugasemd að viðkomandi starfs­stöð teljist ekki lengur undanskilin gildissviði viðskiptakerfis ESB með losunar­heimildir. Fer þá um viðkomandi starfsstöð skv. 6. mgr. 14. gr. a laga um loftslagsmál og ber rekstraraðila viðkom­andi starfsstöðvar að sækja um losunarleyfi án tafar í samræmi við 8. gr. laga um loftslagsmál og ákvæði reglugerðar um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

 

10. gr.

Magn gjaldskyldrar losunar.

Að lokinni yfirferð og staðfestingu losunarskýrslu í samræmi við 9. gr. sendir Umhverfisstofnun skýrslu um magn gjaldskyldrar losunar til innheimtumanns ríkis­sjóðs í umdæmi viðkomandi starfs­stöðvar. Skýrslan skal send fyrir 31. maí ár hvert. Um fjárhæð, álagningu og innheimtu los­unar­gjalds fer samkvæmt 2.-5. mgr. 14. gr. a laga um loftslagsmál.

 

11. gr.

Upplýsingaskylda.

Umhverfisstofnun er heimilt að krefja rekstraraðila um allar upplýsingar sem stofnunin þarf á að halda til að meta hvort skilyrði laga um loftslagsmál, reglugerðar þessarar og viðeigandi EES-gerða, sbr. 4. mgr. 6. gr. reglugerðar þessarar, til undanþágu frá viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir hafi verið uppfyllt. Umhverfisstofnun er heimilt að krefjast þess að tilteknar upplýsingar séu vottaðar af óháðum vottunaraðila eða staðfestar með öðrum hætti.

Umhverfisstofnun skal veita rekstraraðila hæfilegan frest til að afhenda upplýsingar skv. 1. mgr. og skal tilgreina ástæður þess að upplýsinganna er krafist.

 

12. gr.

Form gagna.

Umhverfisstofnun er heimilt að fara fram á að umsóknum, skýrslum eða öðrum gögnum sem skila skal til stofnunarinnar samkvæmt reglugerð þessari sé skilað á því formi sem stofnunin ákveður.

 

13. gr.

Þagnarskylda.

Um þagnarskyldu starfsfólks Umhverfisstofnunar og annarra stjórnvalda og stofnana sem sinna verkefnum skv. reglugerð þessari fer samkvæmt ákvæðum X. kafla stjórnsýslulaga og 38. gr. laga um loftslagsmál.

 

14. gr.

Gjaldtaka.

Um gjaldtöku fyrir þau verkefni sem Umhverfisstofnun innir af hendi í tengslum við reglugerð þessa fer samkvæmt XII. kafla laga um loftslagsmál.

 

15. gr.

Þvingunarúrræði og viðurlög.

Um þvingunarúrræði og viðurlög vegna brota samkvæmt reglugerð þessari fer sam­kvæmt XIII. kafla laga um loftslagsmál.

 

16. gr.

Innleiðing EES-gerða.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á 27. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB frá 13. október 2003 um að koma á fót kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsa­lofttegunda innan Bandalagsins og um breytingu á tilskipun ráðsins 96/61/EB, eins og henni var breytt með tilskipun 2009/29/EB og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/410, sem vísað er til í tölul. 21al í III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2007, frá 27. október 2007, nr. 152/2012, frá 26. júlí 2012 og nr. 112/2020, frá 14. júlí 2020, með þeim breytingum og við­bótum sem leiða af reglugerð þessari, XX. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Tilskipun 2003/87/EB er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sam­bands­ins nr. 54 frá 30. september 2010, bls. 25-39, tilskipun 2009/29/EB er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 54 frá 27. september 2012, bls. 722-746 og tilskipun (ESB) 2018/410 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 13. ágúst 2020, bls. 245-269.

 

17. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. mgr. 14. gr. a laga nr. 70/2012 um loftslagsmál og öðlast gildi við birtingu. Við gildistöku reglugerðarinnar fellur úr gildi reglugerð nr. 1060/2013.

 

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 11. maí 2021.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


B deild - Útgáfud.: 31. maí 2021