Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1526/2021

Nr. 1526/2021 6. desember 2021

GJALDSKRÁ
byggingarfulltrúa Dalvíkurbyggðar.

1. gr.

Fyrir yfirferð og samþykkt aðaluppdrátta og fylgiskjala þeirra, sem gerðir eru vegna nýbygg­inga, viðbygginga og breytinga á eldri byggingum í umdæmi Dalvíkurbyggðar, skal byggingar­fulltrúinn í Dalvíkurbyggð í umboði sveitarstjóra innheimta byggingarleyfisgjöld samkvæmt gjald­skrá þessari.

 

2. gr.

Byggingarleyfisgjöld.

Gjöldin miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Innifalið er byggingarleyfi, útmæling innan bygg­ingarreits, lögboðið byggingareftirlit, lögbundnar úttektir, fokheldisvottorð og vottorð um loka­úttekt.

 

Tegund byggingar Afgreiðslugjald, kr. Fermetragjald, kr.
A Íbúðarhúsnæði, bílgeymslur og gistihús 105.808    264
B Stofnanir, verslunar- og þjónustuhús 105.808    134
C Frístundahús  79.355   264
D Gripahús, iðnaðarhús og sérbyggðar bílgeymslur  79.355 1.104 
E Vélageymslur, gróðurhús og loðdýrahús  79.355     68
F Aðstöðuhús, geymslur, gestahús og sambærilegt  39.678   264

 

Vegna viðbyggingar við áður byggð hús skal greiða kr. 39.678 afgreiðslugjald og fermetragjald samkvæmt töflu um viðeigandi hús.

 

3. gr.

Fermetragjald samkvæmt 2. gr. skal reikna af brúttóflatarmáli sbr. ákvæði ÍST 50, án svala og C rýma. Fermetra skal námunda í heilan fermetra samkvæmt almennum reiknireglum.

 

4. gr.

Gjalddagi lágmarksgjalds er áður en byggingaframkvæmdir hefjast. Gjalddagi fermetragjalds er áður en byggingaframkvæmdir hefjast. Byggingarfulltrúa er óheimil útgáfa byggingarleyfis, eða takmarkaðs byggingarleyfis, fyrr en byggingarleyfisgjald hefur verið greitt.

 

5. gr.

Byggingarleyfisgjald verður ekki endurgreitt falli byggingarleyfishafi frá notkun leyfisins eða það fellur úr gildi.

 

6. gr.

Fyrir þjónustu sem veitt er af hálfu byggingarfulltrúa í umdæmi Dalvíkurbyggðar, skal  bygg­ingar­fulltrúinn í Dalvíkurbyggð í umboði sveitarstjóra innheimta þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

 

7. gr.

Afgreiðslu- og þjónustugjöld.

Fyrir ýmsa þjónustu sem byggingarfulltrúi veitir greiðast eftirfarandi gjöld:

 

Nr. Tegund þjónustu: Gjald kr.
1. Afgreiðslugjald, fast gjald á aðra liði en um getur í 2. og 8. gr. Gjaldið greiðist fyrir hverja einstaka afgreiðslu umhverfisráðs   2.583
2. Stöðuleyfi, árgjald sem greiðist einu sinni á ári:  
  a)    Hjólhýsi o.þ.h. 31.255
  b)    Gámar:  
         allt að 20 fetum að stærð 15.870
         40 fet að stærð 31.742
3. Lóðarúthlutunargjald, óendurkræft þó lóðinni sé skilað til sveitarfélagsins 104.000  
4. Yfirferð eignaskiptalýsingar 53.842
5. Umsögn vegna vínveiting- og rekstrarleyfa 10.767
6. Fyrir húsaleiguúttekt 10.767
7. Fyrir úttekt á verkstöðu vegna lánveitingar 10.767
8. Útprentun á A3      131
9. Útprentun á A4       67
10. Nýr lóðarleigusamningur 53.842
11. Breytingar á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs 21.160
12. Endurskoðun aðaluppdráttar 18.805
13. Minniháttar breytingar á innra skipulagi og útliti húsa 19.844
14. Framkvæmdaleyfi 35.553
15. Endurnýjun leyfis án breytinga 14.107
16. Meiriháttar breytingar á samþykktu deiliskipulagi aðkeypt vinna Skv. reikningi
17. Veruleg eða óveruleg breyting á aðalskipulagi aðkeypt vinna Skv. reikningi
18. Þinglýsing lóðarleigusamninga Skv. reikningi

 

8. gr.

Gjaldskráin uppfærðist til hækkunar um 4% samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar haustið 2021.

 

9. gr.

Gjaldskrá þessi sem var samþykkt af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 ásamt 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 öðlast gildi 1. janúar 2022.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um mann­virki nr. 160/2010. Jafnframt fellur gjaldskrá byggingarfulltrúa Dalvíkurbyggðar nr. 1407/2020 úr gildi.

Samþykkt í umhverfisráði Dalvíkurbyggðar 5. október 2021 og í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 23. nóvember 2021.

 

Dalvík, 6. desember 2021.

 

Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2021