Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt deiliskipulagsbreytingar sem hér segir:
Leirvogstunguhverfi - Vogatunga 58-60. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér tilfærslu á lóðarmörkum við Vogatungu 58 og 60. Suðurhluti lóðar Vogatungu 60 minnkar og færast lóðamörk norðar en vesturlóðir Vogatungu 58-60 stækka í átt að gangstétt; bílastæðum er hliðrað.
Krikahverfi - Sunnukriki 4. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér nýja lóð undir dreifistöð við Sunnukrika 4, norðvestan við núverandi bensínstöð Atlantsolíu ehf. Hin nýja lóð er 35 m2 og nýtingarhlutfall hennar 0,62.
Ofangreindar deiliskipulagsbreytingar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 16. júlí 2020,
Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi.
|