Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 109/2016

Nr. 109/2016 26. janúar 2016

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 140/2014 um meistaranám við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á IV. lið 15. gr. reglnanna:

  1. Á eftir 1. málsl. 1. mgr. bætist við nýr málsliður, svohljóðandi:
    Af þeim geta allt að 30 einingar verið úr BS námi í hjúkrunarfræði.
  2. 1. málsl. 2. mgr. orðast svo:
    Auk þess getur nemandi í meistaranámi í hjúkrunarfræði fengið að hámarki 20 einingar metnar úr sambærilegu námi á meistarastigi, sem hann hefur stundað utan hjúkrunarfræði­deildar en tengist þó rannsóknasviði hans.

2. gr.

Reglur þessar eru settar af háskólaráði með heimild í 3. mgr. 18. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Reglurnar hafa verið samþykktar af hjúkrunarfræði­deild og stjórn heilbrigðisvísindasviðs, auk Miðstöðvar framhaldsnáms, sbr. 66. og 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 26. janúar 2016.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 10. febrúar 2016