Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 929/2021

Nr. 929/2021 13. ágúst 2021

AUGLÝSING
um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.

1. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fallast á tillögu hlut­að­­eigandi ráðherra og sveitarstjórnar, sbr. umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að eftirtaldir lög­aðilar skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþága hvers þeirra endurskoðuð eigi síðar en 1. júlí 2024:

  1. Allianz Ísland hf. söluumboð.
  2. BVS ehf.
  3. Carbfix ohf.
  4. Ergo ehf.
  5. Gagnaveita Reykjavíkur ehf.
  6. Hringur – eignarhaldsfélag ehf.
  7. Íslandsbanki hf.
  8. Íslandssjóðir hf.
  9. Kreditkort ehf.
  10. Miðengi ehf.
  11. ON Power ohf.
  12. Orka náttúrunnar ohf.
  13. Þróunarsjóðurinn Langbrók.

 

2. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að undanþágur eftir­talinna lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga skuli falla brott:

  1. Borgun hf.
  2. D-1 ehf.
  3. EFF 2 ehf.
  4. Fastengi ehf.
  5. Frakt flutningsmiðlun ehf.
  6. Geysir General Partner ehf.
  7. Geysir Green Investment Fund slhf.
  8. GP ÍSF ehf.
  9. ÍSB fasteignir ehf.
  10. ÍSF slhf.
  11. LT lóðir ehf.
  12. OIF ehf.
  13. RIVULUS ehf.
  14. Samskipti ehf.
  15. Smyrlaheiði ehf.
  16. SPW ehf.

 

3. gr.

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.

 

Forsætisráðuneytinu, 13. ágúst 2021.

 

Katrín Jakobsdóttir.

Bryndís Hlöðversdóttir.


B deild - Útgáfud.: 17. ágúst 2021