Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1501/2021

Nr. 1501/2021 10. desember 2021

REGLUR
varðandi útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli með viðmiðunardagsetningar frá 30. september 2020 til 29. september 2021.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátrygg­inga­félaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.

 

2. gr.

Upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla.

Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi, skal vátryggingaskuld vera samtala besta mats á skuldbindingum og áhættuálagi. Reglur þessar eru settar til að innleiða framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) þar sem fram koma tæknilegar upp­lýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla samkvæmt 2. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016.

 

3. gr.

Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1647 frá 9. nóvember 2020 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 30. september 2020 til 30. desember 2020 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 49/2021 frá 5. febrúar 2021.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/178 frá 8. febrúar 2021 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagna­skila með viðmiðunardagsetningar frá 31. desember 2020 til 30. mars 2021 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 146/2021 frá 23. apríl 2021.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/744 frá 6. maí 2021 um tækni­legar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna skýrslu­gjafar með viðmiðunardagsetningar frá 31. mars 2021 til 29. júní 2021 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2021 frá 11. júní 2021.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1354 frá 6. ágúst 2021 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna skýrslu­gjafar með viðmiðunardagsetningar frá 30. júní 2021 til 29. september 2021 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 244/2021 frá 24. september 2021.

Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópu­sambandsins (e. Official Journal of the European Union):

  1. OJ, deild L, nr. 375, þann 10. nóvember 2020, bls. 1-91;
  2. OJ, deild L, nr. 53, þann 16. febrúar 2021, bls. 6-96;
  3. OJ, deild L, nr. 160, þann 7. maí 2021, bls. 3-88;
  4. OJ, deild L, nr. 291, þann 13. ágúst 2021, bls. 24-119.

 

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016, um vátrygginga­starfsemi, öðlast þegar gildi.

 

Seðlabanka Íslands, 10. desember 2021.

 

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir 
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 23. desember 2021