Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 710/2022

Nr. 710/2022 20. maí 2022

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1004/2009 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1831/2003 um gerð og framsetningu umsókna og mat á aukefnum í fóðri og leyfi fyrir þeim.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 48/2022 frá 18. mars 2022, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1773 frá 26. nóvember 2020 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 429/2008 um nákvæmar reglur um framkvæmd reglu­gerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1831/2003 að því er varðar gerð og framsetningu umsókna og mat á aukefnum í fóðri og leyfi fyrir þeim. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 21. apríl 2022, bls. 48.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 20. maí 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 16. júní 2022