Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1658/2021

Nr. 1658/2021 29. desember 2021

REGLUGERÐ
um fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof.

1. gr.

Fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldra­orlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2021 til og með 31. desember 2021:

  1. Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 24. gr. laganna skal nema 600.000 kr. á mánuði.
  2. Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 137.632 kr. á mánuði.
  3. Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 190.747 kr. á mánuði.

 

2. gr.

Fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2021 til og með 31. desember 2021:

  1. Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 83.233 kr. á mánuði.
  2. Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 190.747 kr. á mánuði.

 

3. gr.

Fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldra­orlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varan­legt fóstur frá og með 1. janúar 2022 eða síðar:

  1. Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 24. gr. laganna skal nema 600.000 kr. á mánuði.
  2. Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 143.963 kr. á mánuði.
  3. Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 199.522 kr. á mánuði.

 

4. gr.

Fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2022 eða síðar:

  1. Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 87.062 kr. á mánuði.
  2. Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 199.522 kr. á mánuði.

 

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 3. mgr. 54. gr. laga nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldra­­orlof, öðlast þegar gildi.

 

Félagsmálaráðuneytinu, 29. desember 2021.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.

Bjarnheiður Gautadóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2021