Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 117/2024

Nr. 117/2024 31. janúar 2024

GJALDSKRÁ
Sjúkratrygginga Íslands fyrir dagdvöl aldraðra á vegum stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2024 og eru án samnings um verð við Sjúkratryggingar Íslands.

1. gr.

Gildissvið.

Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði við dagdvöl skv. gjaldskrá þessari. Gjaldskráin tekur til þjónustu við sjúkratryggða einstaklinga í dagdvalarrýmum á vegum stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2024 og eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

Gjaldskrá þessi er sett á grundvelli 38. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og 7. gr. reglu­gerðar nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra.

 

2. gr.

Daggjöld vegna þjónustu í dagdvalarrýmum.

Daggjald fyrir þjónustu í dagdvalarrými er greitt eftir hvern almanaksmánuð.

Tilgreindur fjöldi dagdvalarrýma ákvarðar umfang þjónustunnar sem greiðsluþátttaka Sjúkra­trygginga Íslands tekur til. Miðað er við að þjónusta í dagdvalarrými sé í boði 250 daga ársins.

Miðað er við að ein koma í dagdvalarrými vari í a.m.k. 6 klst. á dag. Innifalið í daggjöldum dag­dvalarrýma er nauðsynlegur flutningskostnaður og hvers konar þjónusta sem látin er í té á stofn­unum, sbr. meðal annars reglugerðir nr. 1245/2016, um dagdvöl aldraðra og nr. 427/2013, um greiðslur öldrunarstofnana fyrir heilbrigðis­þjónustu.

Daggjöld fyrir dagdvalarrými skulu vera sem hér segir:

Tegund dagdvalar   Fjöldi dagdvalarrýma Daggjald

A. Heilbrigðisumdæmi höfuðborgarsvæðisins


Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Drafnarhús, dagdvöl, Hafnarfirði 22 21.202 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Eir, Reykjavík  48 21.202 kr.
Almenn dagdvöl Eir - Hlaðhamrar, Mosfellsbæ 9   9.695 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Hlíðarbær, dagdvöl, Reykjavík 22 21.202 kr.
Almenn dagdvöl Hrafnista, Sléttuvegi, Reykjavík 30   9.695 kr.
Almenn dagdvöl Hrafnista, Boðaþingi, Kópavogi 30   9.695 kr.
Almenn dagdvöl Hrafnista, Hafnarfirði 26   9.695 kr.
Almenn dagdvöl Hrafnista Ísafold, Garðabæ 16   9.695 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Hrafnista Ísafold, Garðabæ 4 21.202 kr.
Dagdvöl með sérhæfðri endurhæfingu Hrafnista, Reykjavík 30 26.496 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Hrafnista, Reykjavík 30 21.202 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Maríuhús, dagdvöl, Reykjavík 22 21.202 kr.
Almenn sérhæfð dagdvöl Múlabær, dagdvöl, Reykjavík 52 13.826 kr.
Dagdvöl með sérhæfðri endurhæfingu Múlabær, dagdvöl, Reykjavík 8 26.496 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Roðasalir, Kópavogi 20 21.202 kr.
Almenn dagdvöl Sóltún öldrunarþjónusta - Sólvangur, Hafnarfirði 14   9.695 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Sóltún öldrunarþjónusta - Sólvangur, Hafnarfirði 12 21.202 kr.
Almenn dagdvöl Vigdísarholt - Sunnuhlíð, Kópavogi 21   9.695 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Vigdísarholt - Sunnuhlíð, Kópavogi 9 21.202 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Vitatorg, dagdvöl, Reykjavík 18 21.202 kr.
Almenn dagdvöl Þorrasel, dagdvöl, Reykjavík 50   9.695 kr.
     
B. Heilbrigðisumdæmi Suðurnesja    
Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Grindavík 5   9.695 kr.
Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Reykjanesbæ 18   9.695 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Dagdvöl aldraðra, Reykjanesbæ 15 21.202 kr.
     
C. Heilbrigðisumdæmi Vesturlands    
Almenn dagdvöl Brákarhlíð, Borgarnesi 4   9.695 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Brákarhlíð, Borgarnesi 1 21.202 kr.
Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Hvammstanga 5   9.695 kr.
     
D. Heilbrigðisumdæmi Vestfjarða    
     
E. Heilbrigðisumdæmi Norðurlands    
Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Skagafirði 11   9.695 kr.
Almenn dagdvöl Dalbær, Dalvík 14   9.695 kr.
Almenn dagdvöl Hvammur, Húsavík 23   9.695 kr.
Almenn dagdvöl Naust, Þórshöfn 4   9.695 kr.
     
F. Heilbrigðisumdæmi Austurlands    
Almenn dagdvöl Dagdvalarheimilið Breiðdalsvík 5   9.695 kr.
Almenn dagdvöl Hlymsdalir, Egilsstöðum 5   9.695 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Hlymsdalir, Egilsstöðum 3 21.202 kr.
Almenn dagdvöl Sundabúð Vopnafirði 1   9.695 kr.
Almenn dagdvöl Tryggvabúð, dagdvöl, Djúpavogi 4   9.695 kr.
     
G. Heilbrigðisumdæmi Suðurlands    
Almenn dagdvöl Ás, Hveragerði 5   9.695 kr.
Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Þorlákshöfn 8   9.695 kr.
Almenn dagdvöl Hjallatún, Vík 2   9.695 kr.
Almenn dagdvöl Kirkjuhvoll, Hvolsvelli 2   9.695 kr.
Almenn dagdvöl Klausturhólar, Kirkjubæjarklaustri 2   9.695 kr.
Almenn dagdvöl Lundur, Hellu 2   9.695 kr.
Almenn dagdvöl Sveitarfélagið Hornafjörður, dagdvöl 7   9.695 kr.



639

 

 

3. gr.

Húsnæðisgjald.

Húsnæðisdaggjald fyrir dagdvalarrými mætir viðhaldskostnaði húsnæðis sem nýtt er til reksturs þeirra. Húsnæðisdaggjald árið 2024 er kr. 492 á dag fyrir að hámarki 30 fermetra dagdvalarrými.

Húsnæðisdaggjaldið fyrir dagdvalarrými hlutfallast í samræmi við stærð rýmisins og reiknast aldrei á stærra rými en hámarkið segir til um.

 

4. gr.

Greiðsluþátttaka.

Greiðsluþátttaka hins sjúkratryggða vegna dagdvalar fer samkvæmt 19. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra og reglugerð nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra.

 

5. gr.

Dagdvöl.

Umsóknir um dagdvöl skulu berast til viðkomandi rekstraraðila eða heimilis sem býður upp á úrræðið. Þurfi að forgangsraða umsækjendum skulu þeir ganga fyrir sem eru í mestri þörf fyrir úrræðið. Auk þess skal taka tillit til dagsetningar umsóknar og þess hvort umsækjandi hafi áður verið í sams konar úrræði og þá hversu langt er liðið frá því að það var síðast notað.

Dagdvöl aldraðra er stuðningsúrræði við þá sem að staðaldri þurfa eftirlit og umsjá til að geta búið áfram heima. Þar skal veitt hjúkrunarþjónusta og vera aðstaða til þjálfunar og læknisþjónustu. Boðið skal upp á flutningsþjónustu að og frá heimili einstaklingsins, mat á heilsufari, þjálfun, tómstunda­iðju, félagslegan stuðning, fræðslu, ráðgjöf og aðstoð við athafnir daglegs lífs, sbr. lög nr. 125/1999 og reglugerð nr. 1245/2016.

A. Almenn dagdvöl.

Dagdvölin er stuðningsúrræði fyrir aldraða sem að staðaldri þurfa eftirlit, umsjá og stuðning til að geta búið heima. Notendur dagdvalar geta sótt þjónustuna daglega eða tiltekna daga í viku hverri. Tryggja þarf notendum dagdvalar heilbrigðisþjónustu og félagslegan stuðning á því þjónustustigi sem er eðlilegast miðað við þörf og ástand hvers og eins.

B. Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun.

Dagdvölin tekur m.a. til sjúkra- og/eða iðjuþjálfunar fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm og miðar þjónustan að því að rjúfa einangrun einstaklinganna, gefa þeim kost á að umgangast jafn­ingja, taka þátt í daglegum athöfnum og þjálfa hug og hönd eins og geta hvers og eins býður. Áhersla er á að gera einstaklingnum kleift að búa heima og viðhalda sjálfhjálpargetu með því að bjóða upp á örvandi og hvetjandi starfsemi og fresta þannig þörf fyrir sólarhringsumönnun. Þjónustan skal taka mið af þörfum einstaklingsins, áhuga, getu og óskum. Leggja skal áherslu á sveigjanleika í starfsem­inni, fjölbreytta virkni, þjálfun og afþreyingu út frá mismunandi þörfum og áhuga. Þannig skal stuðla að umönnun sem eflir styrk og getu, stuðlar að vellíðan og eykur öryggi. Leggja skal áherslu á að skapa rólegt og öruggt umhverfi með faglegri umhyggju. Einnig skal huga að mikilvægi upplýsinga­gjafar til einstaklingsins og aðstandenda hans.

C. Dagdvöl með sérhæfðri endurhæfingu.

Í dagdvöl með sérhæfðri endurhæfingu felst dagþjálfun þar sem áhersla er lögð á líkamlega þjálfun og félagslega virkni. Þjónustan er eingöngu fyrir aldraða þar sem endurhæfing er forsenda þess að viðkomandi geti áfram búið heima eða fyrir aldraða sem þarfnast endurhæfingar í kjölfar sjúkrahúslegu. Dagþjálfunin er 8-10 vikna úrræði 3-5 daga vikunnar og opin frá kl. 8-19 alla virka daga.

Umsókn til meðferðaraðila skal vera á þar til gerðu eyðublaði þjónustuaðila. Með henni skal fylgja lækna- og/eða hjúkrunarbréf þar sem fram kemur að þörf sé á þjálfun til dæmis sjúkra- og/eða iðjuþjálfun. Ef umsókn er samþykkt skal inntökuteymi þjónustuaðila gera mat á markmiðum og skipulagi þjálfunar í samráði við fagaðila og skal það uppfært mánaðarlega eða eftir því sem við á.

D. Almenn sérhæfð dagdvöl.

Á eingöngu við um Múlabæ.

 

6. gr.

Rafræn samskipti og reikningsupplýsingar.

Reikningar skulu uppfylla skilyrði laga og reglna á hverjum tíma. Þeir skulu vera á því formi sem Sjúkratryggingar Íslands ákveða. Reikningar er varða þjónustu sem veitt er á grundvelli gjald­skrár þessarar skulu sendir Sjúkratryggingum Íslands rafrænt mánaðarlega. Við sendingu rafrænna reikn­ings­upplýsinga ber að fara eftir færslulýsingu sem Sjúkratryggingar Íslands hafa samþykkt og skulu þær berast Sjúkratryggingum Íslands í síðasta lagi 10. dag hvers mánaðar, fyrir liðinn mánuð.

Rafræn samskipti aðila og varðveisla gagna skulu fara eftir ákvæðum laga um bókhald nr. 145/1994. Rekstraraðilar bera kostnað af innskráningu upplýsinga en ekki af rekstri og viðhaldi RAI‑gagna­grunns og þjónustukerfa Sjúkratrygginga Íslands.

Ef ekki reynist unnt að ákvarða rétt til greiðslu eða fjárhæð hennar vegna skorts á nauðsyn­legum upplýsingum er Sjúkratryggingum Íslands heimilt að fresta greiðslu þar til úr því er bætt. Stofnunin skal gera viðkomandi heimili viðvart ef til frestunar kemur, leiðbeina um hvaða upp­lýsingar skortir og skora á það að veita þær innan viðhlítandi frests.

 

7. gr.

Gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett með stoð í 38. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og 7. gr. reglu­gerðar nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra, með síðari breytingum. Gjaldskráin gildir frá 1. janúar 2024 og er gildistími sá sami og kveðið er á um í 7. gr. reglugerðar nr. 1245/2016 með síðari breyt­ingum. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 43/2023.

 

Sjúkratryggingum Íslands, 31. janúar 2024.

 

Sigurður H. Helgason.

Júlíana H. Aspelund.


B deild - Útgáfud.: 1. febrúar 2024