Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1698/2021

Nr. 1698/2021 21. desember 2021

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 381/2019 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2155 frá 22. september 2017 um breyt­ingu á framseldri reglugerð (ESB) nr. 149/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um óbeint stöðustofnunarfyrirkomulag, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 64/2020 frá 30. apríl 2020, skal gilda hér á landi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 80/2021 frá 16. desember 2021, bls. 1-7.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 15. gr. laga nr. 15/2018, um afleiðuviðskipti, miðlæga mót­aðila og afleiðuviðskiptaskrár, og öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 21. desember 2021.

F. h. fjármála- og efnahagsráðherra,

Guðrún Þorleifsdóttir.

Guðmundur Kári Kárason.


B deild - Útgáfud.: 6. janúar 2022