Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1207/2014

Nr. 1207/2014 17. desember 2014
GJALDSKRÁ
Hitaveitu Mosfellsbæjar.

I. KAFLI

1. gr.

Hitaveita Mosfellsbæjar selur afnot af heitu vatni úr hitaveitukerfum þeim, sem gerð hafa verið eða verða gerð í Mosfellsbæ og til þeirra húsa, sem fá vatn frá aðfærsluæð, eftir þeim reglum, sem settar eru í gjaldskrá þessari samanber reglugerð fyrir Hitaveitu Mosfellsbæjar.

2. gr.

Hitaveita Mosfellsbæjar lætur hverju húsi, sem er í sambandi við kerfi hennar, í té vatns­magn, er áætla má að nægi til hitunar á húsinu, enda séu ofnar hússins nægilega stórir að dómi veitunnar.

3. gr.

Vatnsmagn það, sem látið er í té samkvæmt 1. og 2. gr., er afhent notanda um rennslis­mæli sem hitaveitan leggur til og annast viðhald á. Mælir þessi skal innsiglaður og er hús­eiganda/notanda með öllu óheimilt að rjúfa innsigli mælisins.

II. KAFLI

4. gr.

1. Gjald fyrir afnot af heita vatninu er sem hér segir:

Heitt vatn um rennslismæli:

 

kr.   

A. Fyrir hvern rúmmetra vatns

100,48

2. Mælaleiga:

Auk þess greiðist fastagjald árlega háð afköstum rennslismælisins en óháð töxtum að öðru leyti.

Því er skipt í þrjá flokka:

kr./dag

A. 15-20 mm

42,91

B. 25-50 mm

96,12

C. 65 mm og stærri

179,88

3. Sérstakir notendur:

Sérstakir notendur greiða fyrir afnot af heita vatninu sem hér segir:v

Notandi

Kr./m³

Athugasemdir

A. Almenningssundlaugar

31,10 kr./m³

Gildir fyrir almenningssundlaugar í eigu sveitarfélaga. Með í taxtanum telst baðvatn og vatn til set- og vaðlauga.

B. Sundlaugar stofnana

53,49 kr./m³

Til þessa flokks teljast sundlaugar sem reknar eru af stofnunum sem ekki eru í beinni eigu sveitarfélaga. Með í taxtanum telst baðvatn og vatn til set- og vaðlauga

C. Gróðurhús

35,54 kr./m³

Taxtinn gildir fyrir gróðurhús sem framleiða garðyrkjuafurðir í atvinnuskyni

D. Vatnsverð án flutningsgjalda

71,07 kr./m³

 

E. Upphitaðir íþróttavellir utandyra

82,05 kr./m³

 

F. Iðnaðarvatn í framleiðsluferla

67,60 kr./m³

 

Taxtinn gildir fyrir þá aðila sem eiga heimæðar sínar og sjá um rekstur þeirra og viðhald á eigin kostnað. Mælir er þá staðsettur veitumegin við heimæðina. Mælagjaldinu er dreift jafnt niður á fjölda reikningstímabila eins og þau eru ákveðin hverju sinni.

4. Innheimtuviðvörun:

Innheimtuviðvörun kr. 950 án vsk. innheimtist 20 dögum eftir gjalddaga/eindaga.

5. gr.

Fjöldi reikningstímabila, sem þó skulu eigi vera færri en fjögur á ári, og innheimtutilhögun hitaveitugjalda hverju sinni sbr. 4. gr. skulu ákveðin af bæjarstjóra. Það teljast vanskil sé reikningur ekki greiddur á gjalddaga.

Hitaveita Mosfellsbæjar skal tilkynna notendum sínum með hæfilegum fyrirvara ef hún ákveður að breyta fjölda reikningstímabila hitaveitureikninga og skal jafnan miða við að breytingar á gjaldskrá taki gildi við upphaf hvers reikningstímabils til að auðvelda not­endum úrlestur hitaveitureikninga og hitaveitunni álagningu þeirra.

III. KAFLI

6. gr.

Heimæðargjald Hitaveitu Mosfellsbæjar skal vera sem hér segir, fyrir eina heimæð:

Sverleiki pípu í mm

Upphæð án vsk. kr.

20

145.398            

25

276.668            

32

415.480            

40

849.787            

50

1.377.421            

65

2.753.346            

80

5.502.814            

Stærð heimæðar er ákvörðuð af Hitaveitu Mosfellsbæjar í samræmi við ósk kaupanda um vatnsmagn í umsókn. Þar sem lengd heimæðar nær ekki 35 metrum gildir ofangreind verðskrá. Fyrir hvern metra umfram 35 metra er heimilt að innheimta 1% af heim­æða­gjöldum viðkomandi málstærðar. Óski húseigandi eftir færslu heimæða að nýjum tengi­punkti greiðir hann heimæðagjöld að nýju.

Gjald vegna tengingar vinnuvatns er kr. 86.058 án vsk.

Heimæðargjald skal greiðast áður en heimæð tengist hitakerfi hússins, samkvæmt þá­gild­andi gjaldskrá.

Nú eru fleiri en eitt hitunarkerfi í húsinu með sérstökum hemlum eða mælum frá hita­veitunni og skal þá greiða kr. 39.757 aukalega fyrir hvern mæli/hemil.

Virðisaukaskattur bætist við öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari og tekur mið af gild­andi reglum um virðisaukaskatt á hverjum tíma.

7. gr.

Nú eru leyfð afnot af hitaveitunni til annars en húshitunar, og er þá bæjarráði heimilt að ákveða gjald fyrir þau afnot sérstaklega í hverju tilviki með hliðsjón af gjaldskrá þessari.

8. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka fjárnámi á kostnað gjaldanda.

9. gr.

Hitaveitan hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð húseiganda, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Til slíkra aðgerða má þó fyrst grípa eftir eindaga og að undangenginni skriflegri viðvörun, sem sendist kaupanda með eigi skemmri en þriggja daga fyrirvara. Allan kostnað við lokun og opnun á ný greiðir sá, sem í vanskilum er, kr. 19.263 í hvert skipti sem opnað er.

10. gr.

Eftirlitsmanni Hitaveitu Mosfellsbæjar skal, hvenær sem er, frjáls aðgangur að öllum hita­kerfum, sem tengd eru við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrir­mælum hans um viðgerðir á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn mis­notkun á heita vatninu.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af bæjarstjórn Mosfellsbæjar, staðfestist hér með sam­kvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi 1. janúar 2015. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis nr. 1136/2013.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. desember 2014.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2014