Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1407/2023

Nr. 1407/2023 5. desember 2023

SAMÞYKKT
um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Norðurþings, nr. 670/2022.

1. gr.

Við samþykktina bætast eftirfarandi nýir viðaukar um fullnaðarafgreiðslu ráða, stjórna, nefnda og starfsmanna sveitarfélagsins án staðfestingar sveitarstjórnar, með vísan til 73. gr. samþykktar­innar, sem birtir eru með samþykkt þessari:

Viðauki 1.1. Almenn skilyrði valdframsals.
Viðauki 1.2. Skipulags- og framkvæmdaráð.
Viðauki 1.3. Fjölskylduráð.
Viðauki 1.4. Byggðarráð.
Viðauki 1.5. Fullnaðarafgreiðsla stjórnenda í stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Viðauki 1.6. Embættisafgreiðslur fjármálastjóra.
Viðauki 1.7. Embættisafgreiðslur félagsmálastjóra.
Viðauki 1.8. Embættisafgreiðslur fræðslufulltrúa.
Viðauki 1.9. Embættisafgreiðslur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
Viðauki 1.10. Embættisafgreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúa.

 

2. gr.

Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Norðurþings hefur sett samkvæmt ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 5. desember 2023.

 

F. h. r.

Aðalsteinn Þorsteinsson.

Ólöf Sunna Jónsdóttir.

 

VIÐAUKAR
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 20. desember 2023