Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1196/2023

Nr. 1196/2023 1. nóvember 2023

REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 477/2016 um sértækar reglur um opinbert eftirlit með tríkínu í kjöti.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, 4. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1418 frá 22. ágúst 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1375 að því er varðar eftirlit með tríkínu í tengslum við stykkjun skrokka og aðrar greiningaraðferðir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 1/2023, frá 3. febrúar 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 75, frá 19. október 2023, bls. 1.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 1. nóvember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 13. nóvember 2023