1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað „74.696 kr.“ kemur: 81.942 kr.
- Í stað orðanna „daggjöldum á dvalarheimili eins og þau eru ákveðin af ráðherra, sbr. 2. gr.“ kemur: að hámarki 384.740 kr.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og gildir frá 1. janúar 2016. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1217/2014, um (8.) breytingu á reglugerð nr. 1112/2006, um stofnanaþjónustu fyrir aldraða.
Velferðarráðuneytinu, 4. janúar 2016.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.
Vilborg Ingólfsdóttir.
|