Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 544/2025

Nr. 544/2025 12. maí 2025

REGLUGERÐ
um (59.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2609 frá 7. október 2024 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarks­gildi leifa fyrir naprópamíð, pýridaben og tebúfenpýrað í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2025 frá 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 404.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2612 frá 7. október 2024 um breytingu á II., III. og IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir kítósan, klópýralíð, dífenókónasól, fitueimingarleifar, flóník­amíð, vatnsrofin prótín og lavandúlýlsenesíóat í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2025 frá 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 423.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2619 frá 8. október 2024 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir fosetýl, kalíumfosfónöt og dínatríumfosfónat í eða á til­teknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2025 frá 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 455.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2633 frá 8. október 2024 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir asoxýstróbín, famoxadón, flútríafól, mandíprópamíð og mefentrí­flúkónasól í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2025 frá 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 485.
  5. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2640 frá 9. október 2024 um breytingu og leiðréttingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir 1,4-dímetýlnaftalín, díflúoróediksýru, flúópýram og flúpýra­dífúrón í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2025 frá 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 504.

 

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvegaráðuneytinu, 12. maí 2025.

 

F. h. r.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Svava Pétursdóttir.


B deild - Útgáfud.: 23. maí 2025