Landskjörstjórn gerir kunnugt: að í ljósi fjölda kjósenda á kjörskrá að baki hverju þingsæti við nýafstaðnar alþingiskosningar 29. október 2016 skuli við næstu almennu alþingiskosningar vera átta þingsæti í Norðvesturkjördæmi, sjö kjördæmissæti og eitt jöfnunarsæti, en þrettán þingsæti í Suðvesturkjördæmi, ellefu kjördæmissæti og tvö jöfnunarsæti, sbr. 5. mgr. 31. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944, og 9. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000.
Reykjavík, 7. nóvember 2016.
Kristín Edwald. |
|
Þórir Haraldsson. |
Sigrún Benediktsdóttir. |
|
Ástráður Haraldsson. |
Gunnar Sturluson. |
Þórhallur Vilhjálmsson.
|