Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 9/2024

Nr. 9/2024 29. janúar 2024

AUGLÝSING
um innleiðingu á breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2022/478 að því er varðar framlengingu á gildistíma verndarráðstafana varðandi innflutning á samlokum frá Tyrklandi sem eru ætlaðar til manneldis.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 163/2024 um (1.) breytingu á reglugerð nr. 713/2022 um að viðhalda verndarráðstöfunum varðandi innflutning á sam­lokum frá Tyrk­landi sem eru ætlaðar til manneldis, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/360 frá 24. janúar 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2022/478 að því er varðar framlengingu á gildistíma verndarráðstafana varðandi innflutning á samlokum frá Tyrklandi sem eru ætlaðar til mann­eldis. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.

 

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Matvælaráðuneytinu, 29. janúar 2024.

 

Katrín Jakobsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 9. febrúar 2024