Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1214/2022

Nr. 1214/2022 24. október 2022

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um skil á upplýsingum vegna tekjuársins 2022, sbr. reglugerð nr. 1240/2015, með síðari breytingum.

Fjármálastofnanir, sem tilkynningarskyldar eru skv. 1. og 2. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015, um framkvæmd áreiðanleikakannana vegna upplýsingaöflunar á sviði skattamála, skulu skila upp­lýsingum vegna ársins 2022 um erlenda reikningshafa, þó ekki bandaríska, til Skattsins eigi síðar en 20. janúar 2023.

  1. Tilkynninga- og upplýsingaskyldan tekur til reikninga erlendra aðila, (innlánsreikninga, vörslu­reikninga, vátryggingasamninga að tilteknu peningavirði og lífeyrissamninga).
    Þegar áreiðanleikakönnun skv. reglugerðinni leiðir í ljós að reikningshafi sé erlendur aðili, þ.e. einstaklingur eða lögaðili, skal skila m.a. eftirfarandi upplýsingum:
    a) Nafni, heimilisfangi og erlendri skattkennitölu sérhvers tilgreinds erlends reikningshafa (einstaklinga og lögaðila) sem á eða fer með tilkynningaskyldan reikning. Ef reikn­ings­hafi er lögaðili sem ekki telst vera erlendur en áreiðanleikakönnun skv. reglu­gerð­inni leiðir í ljós að lögaðilinn hefur einn eða fleiri ráðandi aðila (e. controlling person), sem teljast erlendir aðilar, skal skila upplýsingum um nafn, heimilisfang og erlenda skattkennitölu þeirra, sbr. 40. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015.
    b) Reikningsnúmeri eða ígildi þess.
    c) Reikningsstöðu í árslok 2022. Hafi reikningi verið lokað á árinu 2022 skal staða reiknings vera núll.
  2. Til viðbótar við framangreindar upplýsingar skal einnig skila eftirfarandi upplýsingum:
    a) Sé um innlánsreikninga að ræða skal skila upplýsingum um heildarfjárhæð greiddra eða tekjufærðra vaxta á árinu 2022.
    b) Sé um vörslureikning að ræða skal skila upplýsingum um heildarfjárhæð greiddra vaxta, arðs og annarra tekna, þ.m.t. sölu- og gengishagnað, sem myndast hefur vegna ávöxtunar þeirra eigna sem viðkomandi vörslureikningur hefur að geyma og hafa verið færðar sem tekjur inn á reikninginn (eða með tilliti til reikningsins) á árinu 2022.
  3. Sé reikningshafi óvirkur lögaðili sem ekki er fjármálastofnun sbr. 42. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015, skal upplýsa um nöfn, heimilisföng og erlendar skattkennitölur þeirra eig­enda lög­aðilans sem teljast erlendir aðilar.
  4. Þrátt fyrir að fjármálastofnanir, sem falla undir tilkynningarskyldu, hafi enga reikninga í eigu eða umráðum erlendra aðila skulu þær engu að síður skila núllskýrslum til Skattsins í samræmi við skilalýsingu, og staðfesta með þeim hætti að upplýsingaskyldu hafi verið sinnt.

Ef skilað er röngum eða ófullnægjandi upplýsingum til Skattsins eða ef þær eru á annan hátt ekki samkvæmt skilalýsingu, skal tilkynningaskylda fjármálastofnunin eftir atvikum greiða þann kostnað sem af því kann að hljótast.

Upplýsingunum skal skilað rafrænt samkvæmt lýsingu á vef Skattsins á slóðinni: https://www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus/crs/.

Allar fyrirspurnir um ofangreind gagnaskil skal senda á netfangið: [email protected].

Staðfesta skal sendingu gagna með tilkynningu á netfangið [email protected]. Jafnframt skal í þeim sama tölvupósti tilgreina nafn og netfang þess tengiliðar hins tilkynningaskylda aðila sem hefur með höndum samskipti við Skattinn samkvæmt auglýsingu þessari.

 

Auglýsing þessi, sem birt er skv. 92., 93. og 94. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 12. gr. reglu­gerðar nr. 1240/2015, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Reykjavík, 24. október 2022.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 8. nóvember 2022