Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 931/2019

Nr. 931/2019 27. september 2019

REGLUGERÐ
um (36.) breytingu á reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.

1. gr.

9. viðauka við reglugerð nr. 301/1995, með síðari breytingum, er breytt í samræmi við viðauka sem birtur er með reglugerð þessari.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/114 frá 24. janúar 2019 um breytingu á tilskipunum 2003/90/EB og 2003/91/EB um fram­kvæmdarráðstafanir með tilliti til 7. gr. tilskipunar ráðsins 2002/53/EB og 7. gr. tilskipunar ráðsins 2002/55/EB, í þeirri röð, að því er varðar þá eiginleika sem athugun skal að lágmarki taka til og lágmarksskilyrði vegna athugana á tilteknum yrkjum nytjaplantna og grænmetistegunda í land­búnaði, sem tekin var inn í III. kafla I. viðauka við EES-samninginn með ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar nr. 144/2019, frá 14. júní 2019. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 49, frá 20. júní 2019, bls. 173.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. september 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 24. október 2019