Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1167/2012

Nr. 1167/2012 14. desember 2012
GJALDSKRÁ
Norðurorku hf. fyrir hitaveitu.

1. gr.

Norðurorka hf. selur afnot af heitu vatni úr veitukerfi sínu samkvæmt gjaldskrá þessari og reglugerð Norðurorku fyrir heitt vatn. Gjaldskráin gildir á öllu orkuveitusvæði Norður­orku. Á gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari leggjast virðisaukaskattur og önnur gjöld samkvæmt gildandi lögum og reglum á hverjum tíma.

2. gr.

Norðurorka takmarkar allajafna ekki aðgang húsveitu að vatni umfram það er heimæð og veitukerfi gera. Þó er veitunni heimilt að setja upp búnað hjá notanda, sem tryggir aðra notendur gegn óeðlilegum þrýstibreytingum og er starfsmönnum veitunnar einum heimilt að breyta stillingu hans.

3. gr.

Fyrir afnot af heita vatninu skal greiða (allar veitur nema Ólafsfjörður og Reykjaveita):

A. Vatnsgjald.

Samkvæmt vatnsmæli fyrir hvern rúmmetra vatns.

Grunnverð kr. 100

Þar til vatnsmælir hefur verið settur upp eða ef vatnsmælir, húsveita eða annar búnaður bila þannig að mæling bregst, áætlar veitan vatnsnotkun með hliðsjón af hitaþörf hússins. Hafi áhleyping eða tenging ekki átt sér stað einu ári eftir að heimlögn er tilbúin til tengingar hefst innheimta samkvæmt gjaldskrá.

B. Fastagjald.

Norðurorka ákveður mælisstærð fyrir hverja húsveitu. Greiða skal fast gjald sem fer eftir stærð vatnsmælis sem hér segir:

Fast gjald fyrir hvern mæli:

 

Mælir

Grunnverð kr./dag

 

15 mm

54,02

 

 

20 mm

115,78

 

 

25 mm

223,84

 

 

32 mm

432,24

 

 

40 mm

879,93

 

 

50 mm

1.698,11

 

C. Heimæðagjald. Aðalheimæðar (allar veitur nema Reykjaveita):

 

Þvermál inntaks

Grunnverð kr.

 

20 mm heimæð

391.537

 

 

25 mm heimæð

493.835

 

 

32 mm heimæð

648.991

 

 

40 mm heimæð

888.376

 

 

50 mm heimæð

1.265.401

 

 

65 mm heimæð

1.872.837

 

 

80 mm heimæð

2.871.618

 

Tengigrindargjald er innifalið í heimæðagjaldi en sé óskað eftir auka tengigrind kostar hún kr. 50.533,60.

Ef heimlagnagjald, þar með talið lengdargjald, stendur ekki undir kostnaði s.s. í frágengnu hverfi er heimæðagjald fyrir nýja eða stækkaða heimæð greitt sam­kvæmt kostnaðaráætlun eða raunkostnaði samkvæmt nánara samkomulagi við umsækj­anda.

Lengdargjald:

  1. Lengdargjald í dreifbýli er kr./metri 4.426. Lengdargjald er greitt frá stofnlögn að tengistað heimæðar að frádregnum 20 metrum.
  2. Lengdargjald í þéttbýli er kr./metri 7.869. Lengdargjald skal greitt fyrir hvern metra umfram 20 metra innan lóðarmarka.

Í sumarbústaði, frístundahús, vinnuskúra og þess háttar skal settur skápur á útvegg fyrir inntak heimlagnar samkvæmt nánari leiðbeiningum og skilmálum sem koma fram í heimlagnabæklingi.

Hafi áhleyping eða tenging ekki átt sér stað einu ári eftir að heimlögn er tilbúin til teng­ingar hefst innheimta samkvæmt gjaldskrá.

Grunnverð fyrir sumarhús, frístundahús og sambærileg hús er fast gjald og lágmarks­gjald sem samsvarar gjaldi fyrir 300 m³ af heitu vatni. Þar sem gjald fyrir afnot af heitu vatni eru samkvæmt kílóvattsstundamælingu skal lágmarksgjaldið samsvara gjaldi fyrir 12.800 kílóvattsstundir (kWh).

D. Bráðabirgðaheimæðar:

 

Hitaveita

Grunnverð kr.

 

Lengdargjald kr./m

 

20 mm

42.812

 

5.962

 

25 mm

42.812

 

5. 962

 

32 mm

42.812

 

5. 962

Lengdargjald skal greitt fyrir hvern metra í heimæð til bráðabirgðatengingar.

Bráðabirgðaheimæðar skulu aflagðar innan 24 mánaða frá tengingu þeirra.

4. gr.

Ólafsfjörður.

Fast gjald, tengigrind og heimæðagjald er innheimt samkvæmt almennri verðskrá Norður­orku.

Heitt vatn er selt eftir mínútulítrum og vatnsmælum.

Vatnsgjald á mánuði fyrir hvern mínútulítra í hámarksstillingu hemils kr. 1.381,08.

Vatnsgjald fyrir hvern rúmmetra vatns kr. 61,20

5. gr.

Reykjaveita.

Fast gjald og tengigrind er innheimt samkvæmt almennri verðskrá Norðurorku.

Heitt vatn er selt eftir vatnsmælum sem mæla jafnt rúmmetrafjölda sem og hitann á vatn­inu á inntaksstað (framrásarhita) og þar með er hægt að ákvarða kílóvatts­stunda­gildi (kWh) þess vatns sem hver viðskiptavinur fær til afnota. Við ákvörðun kílóvattsstunda (kWh) er bakrásarhiti ákvarðaður með fast gildi 25°C.

Vatnsgjald fyrir hvern rúmmetra vatns er kr. 147,08 sé gjaldið samkvæmt rúm­metra­mælingu.

Vatnsgjald fyrir hverja kílóvattsstund (kWh) er kr. 3,47 sé gjaldið samkvæmt kílóvatts­stunda­mælingu. Norðurorka hf. ákvarðar hvort gjald fyrir afnot af vatninu er samkvæmt rúmmetramælingu eða kílóvattsstundamælingu. Er við það miðað að megin­reglan sé sú að greitt sé samkvæmt kílóvattsstundamælingu í Reykjaveitu.

Heimæðagjald.

Grenivík:

 

Þvermál inntaks

Grunnverð kr.

 

20 mm heimæð

515.492,64

 

25 mm heimæð

654.980,56

 

32 mm heimæð

866.535,28

 

40 mm heimæð

1.192.937,20

 

50 mm heimæð

1.706.835,52

 

65 mm heimæð

2.534.984,40

Dreifbýli:

 

Þvermál inntaks

Grunnverð kr.

 

20 mm heimæð

663.999,44

 

25 mm heimæð

848.005,60

 

32 mm heimæð

1.127.167,60

 

40 mm heimæð

1.557.819,12

Tengigrindargjald er innifalið í heimæðagjaldi en sé óskað eftir auka tengigrind kostar hún kr. 50.533,60.

6. gr.

Innheimtugjald er samkvæmt gjaldskrá viðkomandi innheimtufyrirtækis samkvæmt samningi þar að lútandi.

 

 

kr.  

 

Lokunargjald

2.590

 

Mælaálestrargjald

1.813

 

Seðilgjald

182

 

Afgreiðslugjald á vinnutíma

4.045

 

Afgreiðslugjald utan vinnutíma

17.524

7. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af stjórn Norðurorku, er sett samkvæmt orkulögum nr. 58 frá 29. apríl 1967 og lögum nr. 159, 20. desember 2002 um stofnun hlutafélags um Norðurorku, staðfestist hér með til að öðlast gildi frá og með 1. janúar 2013 og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá Norðurorku hf. nr. 1265 frá 19. desember 2011, sbr. og breytingu á henni nr. 81 frá 25. janúar 2012.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. desember 2012.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Erla Sigríður Gestsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 21. desember 2012