Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1471/2020

Nr. 1471/2020 9. desember 2020

GJALDSKRÁ
fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavíkurborg.

1. gr.

Innheimta skal gjald fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavíkurborg svo sem nánar greinir í gjaldskrá þessari.

 

2. gr.

Gjald fyrir blandaðan heimilisúrgang:

 

Gjaldflokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
A.1 120 l spartunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 18.400
A.2 120 l spartunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 23.800
A.3 240 l grá tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 29.100
A.4 240 l grá tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 36.200
A.5 660 l ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 80.025
A.6 660 l ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 99.550
     
    kr./losun
A.7 3 m³ gámur 16.400
A.8 4 m³ gámur 19.800
A.9 5 m³ gámur 23.150

 

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, pappírsefni:

 

Gjaldflokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
B.1 240 l blá tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 11.400
B.2 240 l blá tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 16.100
B.3 660 l blátt ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 31.350
B.4 660 l blátt ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 44.275
     
    kr./losun
B.5 3 m³ gámur 9.100
B.6 4 m³ gámur 10.050
B.7 5 m³ gámur 11.000

 

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, plastefni:

 

Gjaldflokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
C.1 240 l græn tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 10.500
C.2 240 l græn tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 15.200
C.3 660 l grænt ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 28.875
C.4 660 l grænt ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 41.800
     
    kr./losun
C.5 3 m³ gámur 6.650
C.6 4 m³ gámur 6.800
C.7 5 m³ gámur 6.900

 

Gjaldi fyrir tunnur og ker er ætlað að standa undir kostnaði við ílát, hirðu og förgun úrgangs. Gjaldi fyrir gáma er ætlað að standa undir kostnaði við hirðu og förgun.

 

Aðrir gjaldaliðir.

Merktir pokar fyrir tilfallandi umfram blandaðan úrgang: 1.090 kr./stk.

Gjald fyrir aukalosun: 4.300 kr./ferð auk 1.400 kr./ílát sem losað er.

Gjald fyrir aukalosun djúpgáma er skv. losunargjaldi djúpgáma hér að framan.

Gjald vegna reksturs grenndar- og endurvinnslustöðva: 14.960 kr./íbúð. Gjaldi vegna grenndar- og endurvinnslustöðva er ætlað að standa undir kostnaðarhlutdeild Reykjavíkurborgar í rekstri grenndar- og endurvinnslustöðva Sorpu bs.

Umsýslugjald vegna breyttrar þjónustu, akstur og skráning íláta, er 3.400 kr. fyrir hvert sinn sem óskað er breytinga.

 

3. gr.

Gjalddagi gjalda skv. 2. gr. er útgáfudagur reiknings og eindagi 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga, séu gjöld ekki greidd á eindaga.

 

4. gr.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi. Innheimtudeild Reykjavíkurborgar annast innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari.

Gjaldskráin er samin og samþykkt af borgarráði Reykjavíkurborgar með heimild í 5. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum og 2. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, með síðari breytingum og öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá fyrir sorphirðu í Reykjavíkurborg nr. 1237/2018.

 

Borgarstjórinn í Reykjavík, 9. desember 2020.

 

Dagur B. Eggertsson.


B deild - Útgáfud.: 4. janúar 2021