Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 13/2024

Nr. 13/2024 3. janúar 2024

GJALDSKRÁ
fyrir stofngjald fráveitu, fráveitugjald og rotþróargjald í Dalabyggð.

1. gr.

Sveitarstjórn Dalabyggðar innheimtir gjald fyrir fráveitu í Dalabyggð og hreinsun rotþróa í Dala­byggð skv. gjaldskrá þessari og samþykkt nr. 800/2014 um fráveitur í Dalabyggð.

 

2. gr.

Stofngjald fyrir tengingu og lagningu frárennslislagna við holræsakerfi sveitarfélagsins skal vera:

Fyrir einbýlishús 78.528  kr. á hvert hús
Fyrir fjölbýlishús 26.171  kr. á hverja íbúð
Fyrir annað húsnæði 61  kr. á hvern m³ í húsnæðinu að 4.000 m³
  30  kr. á hvern m³ > 4.000 m³

Ef um tvöfalt frárennsliskerfi er að ræða skulu ofangreindar tölur margfaldaðar með tveimur.

 

3. gr.

Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa, sam­kvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001. Fráveitugjald skal nema 0,19% af álagn­ingarstofni fasteigna. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald. Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.

 

4. gr.

Rotþróargjald fyrir hverja rotþró skal vera eftirfarandi árlega:

Stærð í lítrum    kr.
0-2.000 10.873
2.001-4.000 13.640
4.001-6.000 15.531
6.001-8.000 19.192
8.001-10.000 25.378
Rotþró > 10.000   7.253 pr. umfram rúmmetra

Verð miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að standa fjær rotþró en 10 metra. Fyrir hverja 10 metra umfram það skal greiða kr. 4.326. Rotþró er tæmd þriðja hvert ár. Ákveði eigandi/forráða­maður eignar að tæma oftar greiðir hann allan kostnað af slíku.

 

5. gr.

Gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

 

6. gr.

Gjaldskrá þessi sem var samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar 7. desember 2023 staðfestist hér með samkvæmt 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009 og 59. gr. laga um holl­ustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjald­skrá sama efnis nr. 114/2023.

 

Búðardal, 3. janúar 2024.

 

Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 17. janúar 2024