Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 733/2018

Nr. 733/2018 25. júlí 2018

REGLUGERÐ
um ótímabundið bann við veiðum á sæbjúgum í Breiðafirði.

1. gr.

Frá og með 27. júlí 2018 eru allar veiðar á sæbjúgum bannaðar ótímabundið í Breiðafirði innan línu, sem dregin er frá Selskeri (austan Sigluness á Barðaströnd) 65°26,85´ N - 23°38,45´ V um Selsker sunnan fjarðarins í Eyrarfjall 65°00,00´ N - 23°12,00´ V.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. júlí 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 25. júlí 2018