1. gr.
Hitaveita Húnaþings vestra selur heitt vatn úr hitaveitukerfum þeim, sem gerð hafa verið eða kunna að verða gerð í lögsagnarumdæmi sveitarfélagsins Húnaþings vestra og hún hefur umráðarétt yfir eftir þeim reglum, sem settar eru í gjaldskrá þessari, sbr. reglugerð nr. 1192/2012 fyrir Hitaveitu Húnaþings vestra.
2. gr.
Hitaveita Húnaþings vestra lætur hverju húsi, sem er í sambandi við vatnsæðar hennar í té vatnsmagn, er ætla má að nægi til hitunar á húsinu. Hitaveitan lætur setja rennslismæli eða stillanlegan hemil fyrir hámarksrennsli til hvers upphitunarkerfis og miðast gjald hitaveitunnar fyrir selt heitt vatn við rúmmetra samkvæmt rennslismælinum eða það hámark, sem hemillinn er stilltur á. Hitaveitan ræður gerð rennslismæla og hemla og sér um viðhald og endurnýjun þeirra.
3. gr.
Einungis starfsmenn hitaveitunnar mega breyta stillingu innsiglaðra tengihluta.
Hitaveitan breytir stillingu hemils eftir óskum húseiganda fyrsta árið, sem hús hans er tengt við hitaveitukerfið, en síðan verður hemilsstillingu að jafnaði breytt einu sinni á ári og skal skrifleg beiðni um breytingu koma fram við hitaveituna fyrir 1. september ár hvert. Hámarksstilling hemils gildir allt árið þótt vatnsnotkun verði minni hluta úr ári. Minnsta sala gegnum hemil skal vera 1,5 mínútulítrar. Selt vatnsmagn standi ávallt á heilum eða hálfum mínútulítra.
Ef kaupandi óskar að hemill eða mælir sé prófaður skal hann senda skriflega beiðni þar um til hitaveitunnar. Komi í ljós við þá athugun að frávik sé 5% eða minna, er heimilt að gera kaupanda að greiða álestrargjald. Sé frávik meira skal hitaveitan greiða kostnað við prófunina og leiðrétta reikning kaupanda í samræmi við niðurstöður hennar, þó ekki fyrir lengra tímabil en tvo mánuði nema kaupandi eða Hitaveita Húnaþings vestra, eftir því sem við á, geti sannað að um lengra tímabil hafi verið að ræða, þó lengst fjögur ár.
4. gr.
Hitaveita Húnaþings vestra rekur 4 aðskilin hitaveitusvæði og dreifikerfi með vatni sem hefur mismunandi hita eftir svæðum. Þessi svæði eru a) á Hvammstanga og í dreifbýli við Miðfjörð, Hrútafjörð og í Víðidal, b) á Laugarbakka í Miðfirði, c) á Reykjatanga við Hrútafjörð og d) á Borðeyri. Gjald fyrir eininguna af heitu vatni (m³ eða l/mín) verður því mishátt eftir svæðum.
5. gr.
Gjöld fyrir afnot af hitaveituvatninu eru sem hér segir:
a) |
Hvammstangaveita skv. mæli |
kr. |
124 |
pr. m³ |
b) |
Laugarbakkaveita skv. mæli |
kr. |
99 |
pr. m³ |
c) |
Reykjatangaveita skv. mæli |
kr. |
99 |
pr. m³ |
d) |
Borðeyrarveita |
kr. |
99 |
pr. m³ |
e) |
Hvammstangaveita skv. hemli |
kr. |
2.642 |
pr. mín.lítra |
f) |
Laugarbakkaveita skv. hemli |
kr. |
2.035 |
pr. mín.lítra |
g) |
Reykjatangaveita skv. hemli |
kr. |
2.035 |
pr. mín.lítra |
h) |
Fastagjald hemils eða mælis, allar veitur: |
|
|
|
|
A 15 mm |
|
14.597 |
kr./ár |
|
B 20-25 mm |
|
28.444 |
kr./ár |
|
C 32-50 mm |
|
60.893 |
kr./ár |
|
D 65 mm og stærri |
|
83.127 |
kr./ár |
i) |
Vatnsgjald skv. mæli fyrir gróðurhús |
|
21 |
kr. pr. m³ |
j) |
Vatnsgjald skv. mæli fyrir sundlaugar skal vera 25% af taxta viðkomandi veitna |
|
|
|
k) |
Lokunargjald |
kr. |
4.400 |
|
6. gr.
Heimæðargjald Hitaveitu Húnaþings vestra skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð í þéttbýli:
Þvermál pípu stál |
Þvermál pípu plast |
Heimæðargjald |
Viðmiðunarstærðir húsnæðis |
20 mm |
25 mm |
kr. |
280.159 |
allt að 1.200 m³ |
25 mm |
32 mm |
kr. |
411.726 |
1.200-2.600 m³ |
32 mm |
40 mm |
kr. |
624.054 |
2.600-4.000 m³ |
40 mm |
50 mm |
kr. |
1.153.550 |
4.000-10.000 m³ |
Ef um sverari heimæðar er að ræða skal semja um það sérstaklega.
Lengdargjald.
Lengdargjald í þéttbýli, greiða skal fyrir hvern metra umfram 25 metra innan lóðarmarka, 4.376 kr./m.
Stofngjald fyrir hvern aðrennslismæli umfram einn á sama inntak er kr. 38.748.
Heimæðargjald Hitaveitu Húnaþings vestra í dreifbýli, frávik og breytingar. Gjöld fyrir hitaveitulagnir í dreifbýli og aðrar stærðir heimæða en um getur að ofan svo og fyrir breytingar greiðist samkvæmt skriflegu tilboði hverju sinni.
Sé um óskipulagt svæði að ræða, eða aðstæður óvenjulegar, er heimilt að krefjast sérstaks aukagjalds af húsráðanda eða gera honum að greiða fyrir heimtaugina samkvæmt kostnaði, en gera skal honum aðvart um það fyrirfram.
7. gr.
Heimæðargjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar í október 2012 577,1 stig. Hitaveitunni er heimilt að breyta heimæðagjöldum þessum í samræmi við breytingu á nefndri vísitölu.
8. gr.
Öll gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka fjárnámi á kostnað gjaldanda skv. 79. gr. laga nr. 58/1967, með síðari breytingum.
9. gr.
Hitaveita Húnaþings vestra hefur rétt til að loka fyrir aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð notanda, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með fimm daga fyrirvara. Allan kostnað af lokun og opnun greiðir sá sem vanskilum veldur hverju sinni.
Eftirlitsmanni Hitaveitu Húnaþings vestra skal, hvenær sem er, frjáls aðgangur að öllum hitakerfum, sem tengd eru við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum hans um viðgerð á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun á heita vatninu.
Við gjaldskrána bætist virðisaukaskattur eins og hann er samkvæmt lögum á hverjum tíma.
Gjaldskrá þessi, sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar þann 10. nóvember 2015, staðfestist hér með samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1206/2014.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. janúar 2016.
F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
Kristján Skarphéðinsson.
Ingvi Már Pálsson.
|