Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1235/2020

Nr. 1235/2020 10. desember 2020

AUGLÝSING
um samþykkt skipulagsmál í Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt deiliskipulagsbreytingu sem hér segir:

 

Lynghóll í landi Miðdals – 523-F.
Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að deiliskipulagssvæðið er stækkað til vesturs og nær þá utan um löndin L125346 og L125351. Ný lóð er 6.583 m² og er stærð nýs byggingarreits 1.453 m². Á lóðinni má reisa byggingar að heildarmagni 131,6 m² í samræmi við aðalskipulag. Annað er óbreytt.

 

Ofangreind deiliskipulagsbreyting hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

 

F.h. Mosfellsbæjar, 10. desember 2020,

 

Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 11. desember 2020