Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1055/2019

Nr. 1055/2019 14. nóvember 2019

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit.

1. gr.

Við 2. mgr. 56. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/502 frá 28. febrúar 2018 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/799 þar sem mælt er fyrir um kröfur um smíði, prófun, uppsetningu, virkni og viðgerðir ökurita og íhluta þeirra, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 264, 25. október 2019, birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 90 frá 7. nóvember 2019, bls. 277-347.

2. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 44. gr. a. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 14. nóvember 2019.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Jónas Birgir Jónasson.


B deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2019