Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1504/2022

Nr. 1504/2022 21. desember 2022

GJALDSKRÁ
byggingarfulltrúa Fjallabyggðar.

1. gr.

Fyrir yfirferð og samþykkt aðaluppdrátta og fylgiskjala þeirra, sem gerðir eru vegna nýbygg­inga, viðbygginga og breytinga á eldri byggingum í umdæmi Fjallabyggðar, skal byggingar­fulltrúinn í Fjallabyggð í umboði bæjarstjórnar innheimta byggingarleyfisgjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

 

2. gr.

Byggingarleyfisgjöld.

Gjöldin miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Innifalið er byggingarleyfi, útmæling og hæðar­setning, byggingareftirlit, lögbundnar úttektir, fokheldisvottorð og vottorð um lokaúttekt.

 Tegund byggingar kr./m³ Athugasemdir
A Íbúðarhúsnæði 115 Gjald þó ekki lægra en kr. 118.200
B Iðnaðarhúsnæði 115 Gjald þó ekki lægra en kr. 158.500
C Verslun og þjónusta 115 Gjald þó ekki lægra en kr. 158.500
D Sérhæfðar byggingar 115 Gjald þó ekki lægra en kr. 191.000
E Frístundahús 115 Gjald þó ekki lægra en kr. 96.000
F Aðrar byggingar en tilgreindar í liðum A-E 115 Gjald þó ekki lægra en kr. 96.000
G Stækkun húsnæðis/viðbyggingar o.þ.h. 115 Gjald þó ekki lægra en kr. 61.400
H Niðurrif húsa 0 Fast gjald kr. 11.200
I Endurnýjun eldra byggingarleyfis 0 Fast gjald kr. 11.200
J Umsýslugjald vegna minni grenndarkynningar 0 Fast gjald kr. 28.200
K Umsýslugjald vegna stærri grenndarkynningar 0 Fast gjald kr. 113.000

 

3. gr.

Meginreglur vegna vinnu við deiliskipulag

Gjaldskráin byggir á þeirri meginreglu að aðili sem óskar eftir heimild til gerðar nýs deili­skipulags eða breytingu á deiliskipulagi skuli greiða þann kostnað sem vinnan hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins. Skipulags- og umhverfisnefnd getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulags­vinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á svæðinu eða skipulags­áætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið. Gjaldskráin er gerð með vísun í skipulagslög nr. 123/2010.

Kostnaður vegna deiliskipulags og deiliskipulagsbreytinga:

Nýtt deiliskipulag sbr. 2.mgr. 38. gr. Aðkeypt vinna
á vegum umsækjanda
Veruleg breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 43. gr. Aðkeypt vinna
á vegum umsækjanda
Óveruleg breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 43. gr. Aðkeypt vinna
á vegum umsækjanda
Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna nýs deiliskipulags, sbr. 2. mgr. 38. gr.         195.000 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna verulegra brreytinga, sbr. 1. mgr. 43. gr. 150.000 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna óverulegra breyting, sbr. 2. mgr. 43. gr. með grenndarkynningu   85.000 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna óverulegra breytinga, sbr. 3. mgr. 44. gr. án grenndarkynningar   55.000 kr.

 

4. gr.

Rúmmetragjald samkvæmt 2. gr. skal reikna af brúttórúmmáli sbr. ákvæði ÍST 50, án svala og C rýma. Rúmmetra skal námunda í heilan rúmmetra samkvæmt almennum reiknireglum.

 

5. gr.

Byggingarfulltrúi annast innheimtu byggingarleyfisgjalda samkvæmt gjaldskrá þessari.

 

6. gr.

Gjalddagi lágmarksgjalds er við móttöku byggingarleyfisumsóknar. Gjalddagi rúmmetragjalds er fyrir útgáfu byggingarleyfis. Byggingarfulltrúa er óheimil útgáfa byggingarleyfis, eða takmarkaðs byggingarleyfis, fyrr en byggingarleyfisgjald hefur verið greitt.

 

7. gr.

Byggingarleyfisgjald verður ekki endurgreitt falli byggingarleyfishafi frá notkun leyfisins eða það fellur úr gildi.

 

8. gr.

Fyrir þjónustu sem veitt er af hálfu byggingarfulltrúa í umdæmi Fjallabyggðar, skal byggingar­fulltrúinn í Fjallabyggð í umboði bæjarstjórnar innheimta þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

 

9. gr.

Afgreiðslu- og þjónustugjöld.

Fyrir ýmsa þjónustu sem byggingarfulltrúi veitir greiðast eftirfarandi gjöld:

  Tegund þjónustu: Gjald kr.:
 1. Afgreiðslugjald, fast gjald á aðra liði en um getur í 2. og 8. gr.  
  Gjaldið greiðist fyrir hverja einstaka afgreiðslu skipulags- og   2.800
  umhverfisnefndar  
 2. Stöðuleyfi, árgjald sem greiðist einu sinni á ári.  
  a)   Hjólhýsi o.þ.h. 32.300
  b)   Gámar:  
        upp að 20 fet að stærð 32.300
        40 fet að stærð 62.900
 3. Lóðarúthlutunargjald, óendurkræft þó lóðinni sé skilað til sveitarfélagsins 28.700
 4. Eignarskiptalýsingar, hver umfjöllun 11.400
 5. Vottorð vegna vínveitingaleyfa 11.400
 6. Fyrir húsaleiguúttekt 11.400
 7. Fyrir úttekt á verkstöðu vegna lánveitingar 11.400
 8. Útprentun á A2     260
 9. Útprentun á A3     130
10.  Útprentun á A4       80
11.  Nýr lóðarleigusamningur 57.500
12.  Endurnýjun lóðarleigusamnings 23.000
13. Breytingar á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs 23.000
14. Endurskoðun aðaluppdráttar 23.000
15. Minniháttar breytingar á innra skipulagi og útliti húsa 23.000
16. Framkvæmdaleyfi 80.600
17. Endurnýjun leyfis án breytinga 17.000

 

10. gr.

Gjaldskrá þessa skal bæjarstjórn taka til endurskoðunar við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert.

 

11. gr.

Gjaldskrá þessi er sett af bæjarstjórn Fjallabyggðar með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 ásamt 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um mann­virki nr. 160/2010. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1607/2021 um byggingarleyfis- og þjónustu­gjöld byggingarfulltrúa Fjallabyggðar.

Samþykkt í bæjarstjórn Fjallabyggðar 15. desember 2022.

 

Fjallabyggð, 21. desember 2022.

 

Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 28. desember 2022