Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 323/2020

Nr. 323/2020 7. apríl 2020

REGLUR
um eiginfjárauka fyrir fjármálafyrirtæki vegna kerfisáhættu.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem skylt er að viðhalda eiginfjárauka vegna kerfis­áhættu samkvæmt 86. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

 

2. gr.

Gildi eiginfjárauka fyrir kerfisáhættu.

Fjármálafyrirtæki sem hafa heimild til móttöku innlána skulu viðhalda eiginfjárauka vegna kerfis­áhættu sem nemur 3% af áhættugrunni, vegna innlendra áhættuskuldbindinga. Eiginfjárauk­anum skal einnig viðhaldið á samstæðugrunni, eftir því sem við á.

 

3. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru á grundvelli 1. mgr. 86. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, hafa verið samþykktar af fjármálastöðugleikanefnd og öðlast þegar gildi.

 

Seðlabanka Íslands, 7. apríl 2020.

 

  Ásgeir Jónsson Rannveig Júníusdóttir
  seðlabankastjóri. framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 8. apríl 2020