Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1538/2022

Nr. 1538/2022 22. desember 2022

AUGLÝSING
um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu, persónuafslátt og skattfrelsismark erfðafjárskatts árið 2023.

Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts sam­kvæmt lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörð­unum sveitarstjórna, sbr. lög um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.

Tekjuskattshlutfall á árinu 2023 verður 16,78% af tekjuskattsstofni að 4.919.833 kr., 23,28% af tekjuskattsstofni frá 4.919.834 kr. að 13.812.143 kr. og 31,58% af tekjuskattsstofni frá 13.812.144 kr. Meðalútsvar á árinu 2023 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,67%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2023 verður því 31,45% af tekju­skatts­stofni að 4.919.833 kr., eða að 409.986 kr. að meðaltali á mánuði, 37,95% af tekju­skatts­stofni frá 4.919.834 kr. að 13.812.143 kr., eða frá 409.987 kr. að 1.151.012 kr. að meðal­tali á mánuði og 46,25% af tekjuskatts­stofni frá 13.812.144 kr., eða frá 1.151.013 kr. að meðal­tali á mánuði.

Samkvæmt A-lið 67. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, skal persónuafsláttur hvers einstak­lings á árinu 2023 vera 715.981 kr., eða 59.665 kr. að meðaltali á mánuði.

Samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 2. gr. laga um erfðafjárskatt, nr. 14/2004, skal skattfrelsismark erfða­fjár­skatts í skattstofni dánarbús á árinu 2023 vera 5.757.759 kr.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. desember 2022.

 

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2022