Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1489/2021

Nr. 1489/2021 8. desember 2021

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2022.

Eignamat í árslok.

Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skatta­lega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í árs­byrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður, sbr. framangreint.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2021, álagningarárið 2022, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:

  kr.    
Mjólkurkýr 133.000
Holdakýr og naut 130.000
Kvígur, 1½ árs og eldri 130.000
Geldneyti 75.000
Kálfar, yngri en ½ árs 14.000
Ær og sauðir 6.500
Hrútar 17.000
Gemlingar 9.500
Geitur 10.000
Hross á 14. vetri og eldri 19.000
Hross á 5. – 13. vetri 40.000
Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri 190.000
Önnur nýtanleg reiðhross 105.000
Verðlaunahross á 5. – 13. vetri 290.000
Kynbótahestar á 5. – 13. vetri 390.000
Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri 500.000
Tryppi á 2. – 4. vetri 13.000
Folöld 9.300
Hænsni, eldri en 6 mánaða 945
Varphænsni 6 mánaða og yngri 640
Kjúklingar 260
Endur 910
Gæsir 1.825
Kalkúnar 2.735
Gyltur 42.000
Geltir 62.000
Grísir 12.000
Kanínur 5.000
Minkar: Karldýr 6.000
  Kvendýr 4.000
Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri 0

 

Reykjavík, 8. desember 2021.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 22. desember 2021