Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 492/2020

Nr. 492/2020 22. maí 2020

REGLUGERÐ
um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss.

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra toll­kvótum samkvæmt II. kafla í stofnsáttmála Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA-ríkjanna) varðandi land­búnað, með síðari breytingum, á grundvelli 12. gr. tollalaga nr. 88/2005. Reglugerð þessi gildir um innflutning á afurðum upprunnum í Noregi og Sviss.

 

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

  Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollskrárnr.:     kg % kr./kg
ex0210.xxxx Nautgripakjöt – vöruliður 0210: 01.07.20-30.06.21 10.000 0 0
  Kjöt af dýrum af nautgripakyni:        
0210.2001  -- Beinlaust     0 0
0210.2009  -- Annars     0 0
0406.xxxx Ostur og ystingur: 01.07.20-30.06.21 15.000 0 0

 

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, sem birt er á heimasíðu þess, þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar.

 

4. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Tilboð skulu ráða úthlutun. Verð tollkvótans fyrir öll valin verðtilboð ræðst að svo búnu af verði lægsta valda tilboðsins í hverjum vörulið. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt.

Tilboðsgjafi sá er fær úthlutað tollkvóta skal leysa hann til sín með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs.

Úthlutun skv. 1. og 2. mgr. er ekki framseljanleg.

 

5. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

 

6. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

 

7. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 30. júní 2021.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. maí 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Elísabet Anna Jónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 27. maí 2020