Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 700/2022

Nr. 700/2022 10. júní 2022

GJALDSKRÁ
fyrir þjónustu Náttúrufræðistofnunar Íslands.

1. gr.

Gjald fyrir útselda vinnu sérfræðings.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald samkvæmt gjaldskrá þessari fyrir rannsóknir og ráðgjöf sem falla undir 4. gr. laga nr. 60/1992 um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992.  Gjald fyrir hverja klukkustund skal vera eftirfarandi án vsk:

a. Fyrir sérfræðinga I kr. 17.800
b. Fyrir sérfræðinga II kr. 15.900
c. Fyrir sérfræðinga III kr. 14.000

 

2. gr.

Skordýra- og sveppagreiningar.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald fyrir greiningu á skordýrum og myglusveppum samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992.

Gjaldið skal vera kr. 3.500 fyrir skordýragreiningu til almennings.

Fyrir greiningu á myglusveppum í mannvirkjum skal innheimta tímagjald skv. 1. gr. gjaldskrárinnar.

 

3. gr.

Útgáfa rita.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald fyrir útgáfu rita samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992. Gjald fyrir hvert rit skal vera eftirfarandi án vsk:

a. Fyrir fjölrit Náttúrufræðistofnunar kr. 1.700
b. Fyrir Blika kr. 2.000

4. gr.

Útflutningsleyfi fyrir rannsóknarsýni.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald vegna útgáfu á útflutningsleyfi fyrir rannsóknarsýni samkvæmt. 5. gr. laga nr. 60/1992.

Gjaldið skal vera kr. 50.000.

 

5. gr.

Útflutningsleyfi fyrir minjagripi og uppstoppuð dýr.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald vegna útgáfu á útflutningsleyfi til almennings fyrir minjagripi og uppstoppuð dýr samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992.

Gjaldið skal vera kr. 7.150.

 

6. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt heimild í 5. gr. laga nr. 60/1992 um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur. 

Gjaldskráin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 410/2021 fyrir þjónustu Náttúrufræðistofnunar Íslands.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 10. júní 2022.

 

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Stefán Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 14. júní 2022