Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 221/2022

Nr. 221/2022 10. febrúar 2022

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Skaftárhrepps, virkjun í Hverfisfljóti við Hnútu.

Skipulagsstofnun staðfesti 10. febrúar 2022 breytingu á aðalskipulagi Skaftárhrepps 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 20. janúar 2022.
Í breytingunni felst að stefnu um iðnaðarsvæði I2 í landi Dalshöfða er breytt vegna áforma um að reisa allt að 9,3 MW rennslisvirkjun í Hverfisfljóti við Hnútu í stað allt að 40 MW virkjunar.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 10. febrúar 2022.

 

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 24. febrúar 2022