Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 141/2017

Nr. 141/2017 6. febrúar 2017

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

Við upptalningu kennslugreina í 1. mgr. 94. gr. reglnanna, á eftir málsliðnum „Til MS-prófs í verkefnastjórnun“, bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Til MS-prófs í þjónustustjórnun.

2. gr.

Á eftir 1. málslið 3. mgr. 98. gr. reglnanna bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 52. gr. þessara reglna þreyta nemendur á vormisseri 3. námsárs í BS-námi engin skrifleg próf en verklegu námi lýkur 10. júní.

3. gr.

Í stað orðanna „orku- og umhverfistæknifræði“ í b-lið 1. mgr. og 1. málslið 6. mgr. 130. gr. reglnanna kemur: iðntæknifræði.

4. gr.

Í stað orðanna „orku- og umhverfistæknifræði“ í 3. málslið 1. mgr. 131. gr. reglnanna kemur: iðntæknifræði.

5. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 6. febrúar 2017.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 21. febrúar 2017